Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

20. febrúar afmæli æskuvinkonu minnar

Stormur í heimsókn með mömmu sinni (1)Rarik tók rafmagnið af sveitinni í nótt en það er nýkomið á, núna klukkan 5 að morgni.  Enn er heitavatnsdælan ekki farin að dæla hingað á Torfastaði og ég bíð eftir að rafmagnið verði sett á hana.  Ég er alltaf óróleg vegna hitaveitunnar þegar rafmagnið er rofið, enda mikil vinna að ná lofti af öllu kerfinu og ná upp hitanum.  Við segjum stundum hér heima að Reykvíkingar myndu segja eitthvað ef þeir misstu rafmagnið eins oft og við gerum hér í Uppsveitunum.  Reyndar er Rarik stöðugt að bæta ástandið í rafmagnsmálum og við þökkum að sjálfsögðu fyrir það.  Þessa dagana er verið að bæta við rafstreng inn í sveitina, enda er mikil rafnotkun hjá garðyrkjustöðvunum.

Í dag á æskuvinkona mín hún Sidda afmæli og ég óska henni innilega til hamingju.  Inga vinkona okkar og fyrrum sambýliskona og samstarfsmaður á svo afmæli á morgun.  Til hamingju með afmælið á morgun Inga mín.

Stormur okkar kom í stutta heimsókn í gær á meðan að mamma hans átti góða stund með systkynum sínum í afmælisferð þeirra á Geysi.


18. febrúar 2009. Ár liðið síðan ég slasaðist og byrjaði að blogga.

Í dag er nákvæmlega ár síðan ég slasaði mig illa, féll á gaddfreðna jörð af hesti og braut a.m.k. 5 rifbein, heilt herðablað, viðbein og vísifingur.  Gat mig ekki hrært hægra megin og brotni puttinn á vinstri hönd hafði það í för með sér að ég gat ekki einu sinni greitt mér. 

Var í lengi í vandræðum með að hreyfa mig eftir slysið, enda tók langan tíma fyrir beinin að gróa, einkum herðablaðið.  Ég finn reyndar enn fyrir því.  En áföllum fylgja oft tækifæri.  Ég varð að finna mér eitthvað að gera, annað en að temja hesta og datt þá í hug að reyna að blogga.  Það var upphafið.  Skrifaði fyrstu bloggfærsluna hér á Moggabloggið í mars 2008.

Ég var að kenna í dag, önnur vikan í vinnunni og nú er ég að komast miklu betur inn í málin í Sunnulækjarskóla.  Gaman að kynnast skólastarfinu þar og að fá að taka þátt í því.  Skólinn mjög fallegur, visarverur opnar kennt skv. stefnu um opinn skóla og einstaklingsmiðað nám. 

Úr vinnunni fór ég á sameiginlegan fund sveitarstjórnar Bláskógabyggðar og Grímsness-og Grafningshrepps í Aratungu um samstarfsmál í skólahaldi. Ágætur fundur.

Lina barnsmóðir hans Loga kom í dag í heimsókn með dóttur sína og móður.  Það var mjög gaman að fá þær í heimsókn litla daman mjög fín.   


Sveitarstjórnarfundur Bláskógabyggðar í dag, kóræfing í kvöld

Ég var á fundi sveitarstjórnar í dag.  Að mínu frumkvæði var til umræðu samningur um útleigu á afréttarhúsunum á Kili.  Sveitarfélagið sá sjálft um að leigja ferðamönnum aðstöðuna í Fremstaveri, Árbúðum og skálann í Svartárbotnum til sumarsins 2006.  Eftir það var einkahlutafélaginu Gjásteini leigð aðstaðan og Loftur og Vilborg hafa séð um að leigja aðstöðuna út til ferðaþjónustuaða og ferðamanna undanfarin tvö sumur. 

Mér finnst áríðandi að allir sem kaupa þjónustu af Gljásteini séu ánægðir með að leigja aðstöðu okkar Tungnamanna en afréttarhúsin hafa öll verið byggð af áhugafólki, íbúum í Biskupstungum sem hafa haft áhuga á afrétti sínum og hafa viljað byggja upp aðstöðu þar.  Ég var og er mikil áhugamanneskja um þjónustuuppbyggingu á Kili og beitti mér mjög fyrir uppbyggingu þar einkum á fyrstu árum mínum í sveitarstjórn.  Settist fyrst í sveitarstjórn Biskupstungna vorið 1990 og sat þar til vors 1998.  Fór svo aftur inn vorið 2002 í sveitarstjórn Bláskógabyggðar.

Eftir fundinn og utan dagskrár var rætt um brúarbyggingu yfir Hvítá hjá Bræðrartungu.  Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar tvö að Vegagerðin muni bjóða verkið út fljótlega.  Vona að það gerist næstu daga.

Í kvöld er æfing hjá Skálholtskór hinum heitna.  Hilmar Örn kemur og við æfum með honum í Aratungu.  Áætlað er og æft er fyrir að fara til Berlínar í byrjun sumars og syngja þar í kirkjum.

Um helgina var staða organista við Skálholt loksins auglýst.  Nú verður spennandi að sjá hvort sveitarstjórn stendur við eigin orð um stuðning við söng- og kórastarf hér í Bláskógabyggð.


Þorrablót Tungnamanna í gær 31. janúar. Jóhanna forsætisráðherra í dag. Húrra

Þorrablótið var haldið í gær í Aratungu.  Elín og Drífa á Þorrablóti 2009

Reyndar er hefð fyrir því að halda blótið fyrstu helgina í Þorra en Magnús Einarsson Kjarnholtum varð sextugur þann 24. og hann hélt mikla veislu í Aratungu á afmælisdegi sínum.  Það var reyndar nokkurs konar Þorrablót enda mikill þorramatur, vel veitt af víni og bjór og allt mjög höfðinglegt hjá honum Magnúsi stórbónda og hrossaræktanda.

Það voru þrettán manns hjá mér í troginu. Börnin mín þrjú og tvö tengdabörn komu með okkur, en Guðrún komst ekki erfið prófavika framundan og hún vildi undirbúa sig.  Þröstur og Þórunn létu sig ekki vanta.  Ella, Garðar, Áslaug og vinur hennar voru með okkur í trogi.  Æðislega skemmtilegt kvöld með góðum vinum og fjölskyldu. 

Í dag fór ég til Rvk. á flokksstjórnarfund Samfylkingarinnar og tók þátt í að samþykkja nýja stjórn og ráðherra.  Ingibjörg Sólrún nær vonandi heilsu næstu vikurnar og ég óska Jóhönnu og félögum mínum í Samfylkingunni alls hins besta í verkefnum sínum næstu 80 daga. 


3. janúar 2009.

Ég hef ekki skrifað nýtt ártal fyrr en nú. Árið 2009 nýhafið. Fyrstu þrír dagar ársins hafa verið einstaklega hlýir hér á Torfastöðum um 7 stiga hiti í morgun.  Hitanum fylgir rigning og birtan lætur á sér standa.  Þrátt fyrir að veðrið sé hlýtt og gott þá á ég erfitt með að ríða út og temja hross enda færið sérlega þungt, mikil drulla og erfitt fyrir hrossin að ganga í þessu færi.  Svo verð ég löt í myrkrinu og valdi að lesa blöðin í eftirmiddaginn. 

Mér fannst grein eftir Bjarna Harðarson í Morgunblaðinu góð og hvet fólk til að lesa hana.  Ég finn ekki útúr því að setja hér eins og fínir bloggarar gera og svo kemur greinin en hér er slóðin inná hana: http://pappir.mbl.is/index.php?s=981&p=24729&a=93289  Sé reyndar að fólk verður að hafa áskrift af Morgunblaðinu til að geta lesið greinina.

Hlustaði á Vikulokin á rás eitt í morgun.  Nú eru margir spámenn sem hafa nýja sýn á málin og allt gott um það. 


Jólin afar ánægjuleg og fjölskylduvæn.

Ég hef verið í bloggfríi í hálfan mánuð.  Ekki skrifað staf bara undirbúið og notið jólanna.  Öll börnin voru heima á aðfangadagskvöld g Margrét og Stormur líka.  Jóladag notaði ég til að undirbúa hefðbundna veislu hér á Torfastöðum sem við höldum alltaf 2. dag jóla.  Það vantaði aðeins 3 í hópinn þau Heru, Magnús og Sölku. Veislan tókst með afbrigðum enda skemmtilegt fólk.  Mikil gleði að fá alla austur ekki síst yngstu fjölskyldumeðlimina. 

Í kvöld verðum við svo öll saman á Öldugötunni hjá Sigrúnu og Fjalari eins og í fyrra.  Þá voru brennur ekki brenndar of mikið rok en við öll á túni Landakotskirkju og þar fengu flugeldar að hefja sig til himins.  Torfastaðafjölskyldan á jólum 2008

Óli gaf hrossunum í morgun svo við vonum að þau verði róleg í kvöld þótt skotið verði rakettum í nágrenninu.  Ég fór á bak þremur hestum í morgun en nú bíður sturtan og bíllinn því mæting er snemma á Öldugötunni.  

Á morgun er hefðbundin nýjársdagsmessa hér á Torfastöðum.  Mæti þar eins og alltaf og óska sveitungum mínum gleðilegs árs. 

Óska öllum vinum og fjölskyldu gleðilegs árs með þökk fyrir allt á liðnum árum.  


Skálholt jólatónleikar, nemendur Hilmars Arnar Agnarssonar

Var á jólatónleikum í gærkvöld í Skálholti.  Fékk í kjölfarið póst frá Þrúðu.  Fékk leyfi hennar til að setja hann hér.  Eins og úr mínum munni mælt en miklu betur orðað: 
Var að koma af jólagleði-stundinni þeirra Heklu og Óskar í Skálholtskirkju í kvöld.  Þetta voru bara yndislegir tónleikar og frábært hjá þeim öllum, ekki síst að heyra í krökkunum einusinni enn. Fyrir þá sem ekki voru, þá sungu Hekla, Ósk, Steina og Hjörtur Freyr einsöng, jólakvartetinn þeirra Óskar, Heiðu, Gísla og Hjartar Freys söng og "Unglingakór aðventunnar", (Barnakórskrakkar úr eldri bekkjum og brottfluttir) sungu eins og þau hefðu aldrei hætt að æfa. Undir léku ungir tónlistarmenn, m.a. Smári Þorsteins og vinir Heklu. Frábært framtak.
Það er mín skoðun að við Tungnamenn eigum að nota þetta fallega og frábæra sönghús sem Skálholtskirkja er við öll tilefni sem gefast.  Það kemur því ekkert við hvort við vorum ósátt við hvernig að málum var staðið gagnvart Hilmari og tónlistarstarfi hans fyrir fólkið í sveitinni.  Við megum ekki láta það bitna á okkur sjálfum, enda hafa húsakynni í Skálholti ekki gert okkur neitt!!  Við eigum enn grunninn sem Hilmar byggði, hann verður ekki tekinn af okkur og okkar er að byggja á honum áfram... eða hvað?
Ég naut tónleikanna í gærkvöld og þótti framtakið mjög gott.  Hugsaði stöðugt um það að enn værum við að njóta ávaxta Hilmars Arnar sem hefur kennt og stjórnað ungu fólki hér í Biskupstungum og á Suðurlandi undanfarin 17 ár og lagt ómetanlegan grunn að tónlistarstarfi þeirra. 
Þótt honum væri ekki lengur vært í Skálholti, þá lifir söngurinn sjálfstæðu lífi og unga fólkið hefur tekið málin í eigin hendur.  Húrra fyrir þeim.  

GODREKUR, HEIDREKUR

Nú hef ég fengið tengdason minn til að setja inn myndband af tveimur stóðhestum. 

Hér er GOÐREKUR: endilega skoðið myndbandið. 

http://www.youtube.com/watch?v=SsnoNkTrAzc

Svo er það hann HEIÐREKUR:

http://www.youtube.com/watch?v=hJFXsuIAF7I


Torfastaðir, íslenskir hestar, myndir

Ég hef leyft mér að HEIÐREKUR IS2003188502 (13)nota bloggið mitt til að kynna hesta sem ég er að rækta oGOÐREKUR IS2003188505 (28)g vil gjarnan selja.  Var að taka nokkrar myndir af GOÐREKI IS2003188505 og HEIÐREKI IS2003188502.  Set þær hér svo fólk geti skoðað. 

Hef verið að taka video og nú erum við að ná því að setja það beint inná tölvuna.  Fannar ætlar að koma með rétt tengi næsta föstudag og þá skoðum við hvernig við getum haldið áfram að læra og sett slóð inná video af hestunum.  Mjög spennandi.

Í dag vorum við tengd við kaldavatnsveitu Bláskógabyggðar svo nú eru áhyggjur af köldu vatni úr sögunni.  Þvílíkur lúxus.  En hér koma myndirnar.


Skemmtileg helgi og nóg verkefni framundan

Stormur 23. nóv.2008 og hestarnir frá ömmuFékk að njóta fjöldkyldunnar um helgina.  Fannar og Eldur komu ásamt Margréti og Guðrúnu og auðvitað sólargeislinn hann Stormur.  Öll komin austur á undan mér en ég kom heim um kl. 19:00 af flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar. 

Flokkstjórnarfundurinn var mjög góður, margir tjáðu skoðanir sínar og sitt sýnist hverjum.  Fólk mjög málefnalegt og gaman að því hvað fólk er þroskað og kemur með góð rök fyrir máli sínu.  Ekkert neikvætt nöldur heldur málefnaleg og margbrotin umræða.  Ég gladdist yfir að sjá hvað Ingibjörg Sólrún lítur vel út og vona að hún hafi komist yfir þá meinsemd sem hrjáði hana.  Ég ber alltaf svo mikla virðingu fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og hún stendur algerlega undir væntingum mínumGOÐREKUR IS2003188505 knapi Fannar, yndisleg manneskja. 

Strákarnir mínir, Fannar og Eldur fóru á bak nokkrum hestum fyrir mig í gær.  Ég þurfti að fá að taka myndir og við erum að reyna að koma þeim á video sem hægt er að skoða á netinu.  Kann ekkert á þá tækni en er að reyna að læra.  Þá get ég sett meira af hestatengdu efni á netið, sýnt video af hestunum okkar. 

En nú þarf ég að einhenda mér að Tungufljóti.  Er í verkefnanefnd sem fékk það hlutverk að reyna að stofna veiðideild um Tungufljót, neðan fossins Faxa að ármótum Hvítár.  Spennandi verkefni.  Fimmtudagskvöldið 27. nóv. verður haldinn fundur í Aratungu.  Efni fundarins er að stofna veiðideildina og óska eftir að veiðifélag Árnesinga samþykki hana á næsta aðalfundi sínum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband