Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Heitast 29 stig á Þingvöllum, Bláskógabyggð

29 stiga hiti á Þingvöllum kl 16:00 í dag og rúm 28 stig á Hjarðarlandi.  Skálholt 28 stiga hiti.  Þetta eru opinberar tölur frá Veðurstofu Íslands.
mbl.is Segir hitamet slegið í Hveragerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

26 stiga hiti á Hjarðarlandi, og 27 á Þingvöllum

Mesti hiti á landinu í gær var á Þingvöllum, Bláskógabyggð og klukkan 9:30 var hitinn kominn í 20 gráður hér á Torfastöðum.  Býst við að hitinn hér í Bláskógabyggð, á Laugarvatni, Þingvöllum, Skálholti og Geysi verði jafn mikill og áætlað er í Húsafelli ef ekki meiri.  Núna klukkan 10:30 er hitinn kominn í 25 stig á mæli á Torfastöðum.  Ja hérna, það verður slegið hitamet.
mbl.is 29 gráður og sólskin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarstjórinn gerir enn í buxurnar

Ólafur F. virðist leggja sig fram við að tapa fylgi borgarbúa.  Fylgið var lítið þegar hann hirti til sín borgarstjórastólinn og það minnkar stöðugt. Hann hendir stuðningsmönnum sínum út úr nefndum borgarinnar, hafnar aðstoðarmanninum þegar hún er ekki nógu þæg að hans mati og nú er henni aftur hafnað af Ólafi F. þar sem hún segir ekki það sem honum er þóknanlegt.  Þó segir hún ekki neitt og ég skil ekki að það sem hún sagði skuli hafa verið brottrekstrarsök. Ólafur virðist einræðisherra af verstu gerð, þolir ekki mótlæti og heldur að eigin skoðanir og orð séu betri en annarra.  Ja svei.  Og þetta er borgarstjóri höfuðborgar Íslendinga.    


mbl.is Borgarstjóri skiptir um varaformann skipulagsráðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bilað blogg og borgarstjórinn líka

Skrýtið, nú þegar bloggið er bilað er ég alltaf að gá hvort ég get bloggað.  Geri mönnum ábyggilega erfitt fyrir með því að vera alltaf að reyna að blogga við fréttir en ég get það ekki enn.  Svo fer í mínar fínu að útlit bloggsins míns er breytt og ég get ekki heldur breytt því.  Veit að viðgerðarmenn hamast við að laga bloggástandið hjá mogganum svo ég ætti bara að hafa mig hæga.  En nú virðist ég þurfa sérstaklega að koma með athugasemdir og skoðanir á mönnum og fréttum en ég bara get það ekki.  Jú ég get skrifað en ekki tengt mig við fréttir. 

 Langaði t.d. að hafa skoðun á því að borgarstjórinn hendir konu úr nefnd borgarinnar vegna þess að það sem hún segir við fréttamenn virðist ekki vera honum þóknanlegt.  Borgarstjóri hefur marg sagt að hann verði dæmdur af verkum sínum.  Vill hann að við dæmum hann fyrir að henda fyrrum aðstoðarkonu sinni úr skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar, bara fyrir það að hún opnar munninn, en segir ekki það sem Ólafi F þóknast að hún segi?  Er þetta ekki einhverskonar skoðanakúgun?  Vill Ólafur F borgarstjóri fá að ráða því hvaða skoðanir fólkið hans hefur á skipulagsmálum?  Er það ekki kúgun að vera rekinn úr nefnd fyrir að opna munninn?  Já menn verða og eru vonandi dæmdir af verkum sínum, ekki bara sumu heldur öllum verkum sínum.


Stormur 9 mánaða í dag

Hef verið að reyna að blogga en kerfið bilað.  Nú virðist ég geta skrifað eitthStormur og vinkona á Landsmóti 2008vað en ég ætlaði bara að segja frá því að í dag er Stormur 9 mánaða.  Flottur drengur, heilbrigður, skýr og skemmtilegur.  Yndislegt þegar börnin eru heil og sæl.  Veðrið er alltof gott 22ja stiga hiti og sól og Ólafur er að slá síðustu stykkin.  Höfum þegar hirt um 380 rúllur, ætli við fáum ekki einar 80 af stykkjunum sem eftir eru. 

Mánudagur 28. júlí 2008.

Emil GoðiÞað drífur að fólkið í sveitina, eftir helAndrea Óskgina, Kristinn og Berglind komu fyrir hádegið með börnin tvö Andreu Ósk og Emil Goða og Fannar og Margrét komu í gærkvöld með Storm.  Vorum átta í hádegismatnum, gæddum okkur á dýrindis fiskibollum a la mamma.  Óli fór á Selfoss til að ná sér í efni svo hægt sé að girða sumarbústaðalandið af, erum hrædd um að fá yfir okkur fjölda nauta ef ekki verður girt sem snarast.

Í gærkvöld komu 5 kórmeðlimir Skálholtskórs auk Hilmars Arnar og sonar hans Andra saman í Skútanum, kjallaranum í Aratungu að setja upp hillur og raða upp nótum og efni sem Hilmar Örn og Skálholtskórinn sálugi eiga.  Þetta er efni sem safnast hefur upp undanfarin 17 ár enda hefur Hilmar Örn verið organisti Skálholtsdómkirkju og kórstjóri og tónlistarkennari hér í Biskupstungum síða haustið 1991.  Þetta er mikið magn af gögnum og minningum sem raðað var upp í hillur.  Gögnin þurftu að fara úr Skálholti fyrir 1. júlí svo fyrir þann tíma komu nokkrir kórmeðlimir saman og pökkuðu öllu niður og fluttu burt. 

Hef ekkert heyrt hvað verður í tónlistarmálum grunnskólans næsta vetur, né um ráðningu organista eða tónlistarstjóra í Skálholt, en sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur sem betur fer marg bókað stuðning sinn við kórastarf í sveitinni svo vonandi verður staðið vel að kóramálum barna og ungmenna áfram.  Nú liggur fyrir að Kalli, kennari, tónlistarmaður og náinn samstarfsmaður Hilmars Arnar í Reykholtsskóla er á förum, svo sjaldan er ein báran stök. Hann og Gréta munu flytja til Akureyrar.  Samgleðst Akureyringum að fá svona flott fólk til sín, þeirra verður sárt saknað hér.


Blogg,blogg,blogg......

Vona að mér verði fyrirgefið innihaldslaust blogg.  Hef setið við tölvuna og verið að skoða bloggflokka.  Fattaði ekki að ég hef sjálf flokkað bloggin mín í ranga flokka.  Veit ekkert hversvegna ég er að láta bloggheim og vini vita af eigin vanþekkingu, er bara svo ánægð þegar ég læri eitthvað nýtt.  Skildi satt að segja ekkert í hvernig flokkunin fór fram, hélt að ég mætti bara flokka einu sinni og svo yrði því ekki breytt.  En auðvitað er allt breytilegt í Bloggheimi og nú var ég að raða blogginu mínu skv. umfjöllunarefni þess.  Flettingarnar hafa verið margar í dag sennilega flestar frá mér sjálfri. 

Yngsti knapinn á Torfastöðum

  Má til með að birta mynd af Stormi, sonarsyni mínum, sem ég tók í gær.  Tennurnar fjórar eða fimm sjást aðeins enda er hann skælbrosandi á hestinum sínum, Hnoðreki.  Efnilegur knapi og á öruggYngsti reiðmaðurinn á Torfastöðumlega eftir að fara á hestana hennar ömmu fljótlega. Ég nýt mikillar blessunar að fá að njóta Storms og fjölskyldu hans, hér á Torfastöðum í sumar.  Fannar og Margrét eru að byggja á Holtsgötunni og búa hér á meðan.  Þau skruppu í bæinn í gær, hún að vinna, en koma í dag eða kvöld.

Kristinn Bjarni og Berglind hafa verið með okkur á Torfastöðum undanfarnar vikur, ásamt Andreu og Emil Goða.  Verð að taka mynd af þeim svo ég geti sett hana á bloggið mitt


Uppsveitir Árnessýslu í sól og blíðu.

Í fyrradag fór hitinn upp í 24 gráður hér á Torfastöðum og í gær fór hitinn í 20 stig.  Klukkan 9:00 í morgun var hitinn í Skálholti 15,4 gráður og útlit fyrir mikinn hita í dag hér í Uppsveitunum.   


mbl.is Allt að 25 stiga hiti í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landvernd fer offari

Ég tel að Landvernd hafi misst stuðningsmenn vegna offors í eigin málflutningi.  Verndurnarsjónarmið mega ekki stöðva alla framþróun og ef við megum ekki aka á nútímalegum vegum hvað þá? Samgönguráðherra á allan minn stuðning.

Hvet sem flesta til að skoða eftirfarandi síðu einkum þá sem vilja hjálpa fólki sem ekki getur lifað eðlilegu lífi eins og við hin:   http://hallarut.blog.is/blog/hallarut/entry/594049/


mbl.is Segist ekki hunsa náttúruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband