Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Íslensk fyrirtæki strand í fjármálakreppu
5.10.2009 | 22:15
Geysir Green selur hlut í kanadísku félagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttaflutningur um hótanir og aðra andfélagslega hegðun, afleitur.
31.8.2009 | 06:08
Sprengjuhótun í Grafarvogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldur og Guðrún á leið til Kína. Tungufljót, nýliðnir bændadagar, skírn á sunnudag.
28.8.2009 | 09:23
Það hefur verið mikið að gera hér á Torfastöðum undanfarna daga. Vinir Elds voru hér um síðustu helgi skemmtu sér saman sulluðu í heitapottinum, fóru í leiki, borðuðu og drukku. Einskonar kveðjuhóf með Eldi áður en hann heldur til Kína. Þangað eru hann og Guðrún að fara eftir hálfan mánuð. Hann verður áfram í vinnu hjá sínu fyrirtæki og hún stefnir á nám. Spennandi en frekar kvíðvænlegt fyrir mömmu gömlu. Fuglarnir að fljúgja úr hreiðrinu og fara eins langt og þeir komast. Það verður spennandi að fá að heimsækja þau til Kína.
Bændadagar voru í Tungufljóti síðastliðinn þriðjudag. Veiðin var misjöfn en sumir gestir okkar héldu mjög glaðir til síns heima með tvo og þrjá laxa í farteskinu. Aðrir fengu minna. Í gær fengum við fréttir af því að fyrsti laxinn hafi veiðst fyrir landi Torfastaða. Það var ánægjulegt. Vonandi veit það á mikla veiði næsta sumar.
Fannar Margrét og börn hafa verið hér síðan á sunnudag. Fannar veiktist eftir landsleikinn við Hollendinga sem fór fram á laugardaginn var. Hann hefur verið veikur síðan, kominn með lungnabólgu og Margrét hefur í nógu að snúast með börnin tvö. Stormur líka slappur kvef og þyngsli í brjóstholi. Ekki gott en hefst allt með samheldni. Á sunnudaginn stendur til að skíra litlu í Torfastaðakirku og verður spennandi að fá nafn á hana. Vonandi verður heilsufar ungu fjölskyldunnar orðið betra.
Björt og Birgir komu með einkasoninn 13 daga gamlan í fyrstu heimsókn hans á Torfastaði. Birgir tók þátt í bændadögum í Tungufljóti en Björt og sonur dvöldu heima, hann drakk og svaf. Ægilega sætur..
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvaða menn voru þetta, sem settu sig í stjórn og hirtu eignir?
24.8.2009 | 07:51
Fara í mál við valda menn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnin í Burma söm við sig
11.8.2009 | 09:29
Suu Kyi sakfelld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég sjálf að komast nær Kína og íbúum landsins.
9.8.2009 | 00:34
Enex Kína í sæng með Sinopec | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rannsóknarnefnd alþingis um bankahrunið...
9.8.2009 | 00:09
Það var mjög ánægjulegt að hlusta á Pál Hreinsson formann rannsóknarnefndar alþingis um bankahrunið í útvarpinu í morgun í þættinum: Í vikulokin. Það er sjáldgæft að heyra í fólki sem er eins vel undirbúið, skýrmælt og áheyrilegt og Páll var í morgun.
Hann sagði að verstu fréttir sem þjóðin fengi, eða hefðu fengið, yrðu frá rannsóknarnefndinni og við erum ekki hissa á að heyra það. En Páll og flotta og virðulega nefndin sem hann er í forsvari fyrir, kann að koma fram með niðurstöður sínar þannig að við, almenningur, munum hlusta.
Ég ber mikla virðingu fyrir fólki sem vinnur eins og rannsóknarnefndin gerir og bíð átekta eftir niðurstöðu hennar. Ég þakka fyrir að Tryggvi umboðsmaður alþingis og Páll og Sigríður voru tilnefnd og tóku setu í nefnd alþingis á rannsókn á bankahruninu.
Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Styðja Icesave með fyrirvara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bíðum eftir nýju barnabarni
5.8.2009 | 14:18
Verslunarmannahelgin var alveg yndisleg hér á Torfastöðum. Húsið fylltist af börnum og foreldrum þeirra, langamma mætti og er hér enn og svo voru væntanlegir foreldrar líka með okkur. Fannar keppti á Gautreki og þeir unnu 3ja sætið í B flokknum.
Ég eyddi öllum sunnudeginum í Hrísholti var þulur á Hestaþingi Loga og var orðin ansi þreytt að loknu mótinu. Það fór mjög vel fram, veðrið aldrei verið betra a.m.k. 22 stiga hiti allan daginn. Gestir og keppendur mjög glaðir og gaman að vera meðal fólks sem kann að gleðjast yfir eigin sigrum eða sigrum annarra.
Næsti viðburður verður sennilega sá að Björt fæðir barn. Hún á von á sér næstu daga og við bíðum spennt. Nýjast fjölskyldumeðlimurinn stúlkubarn Fannars og Margrétar og systir Storms veitti öllum mikla gleði. Það gerðu líka sætrri börnin, Andrea, Emil Goði, Óli og svo Stormur.
Allt landið eitt lögregluumdæmi.
30.7.2009 | 14:12
Ég vona að Ragna dómsmálaráðherra nái þessu máli í gegn. Ekkert hagsmunapot politíkusa heldur hugsað um heildarhagsmuni. Auðvitað missa einhverjir spón úr sín um aski, allir sýslumennirnir hljóta að hafa áhyggjur af eigin hag. Margir á prósentum af innheimtum gjöldum eða hafa allavega tekur af innheimtunni. Svo allir hinir sem eru hræddir við breytingarnar, missa e.t.v. völd.
Áfram Ragna, eitt lögregluumdæmi Íslands yrði mjög stór og mikilvæg breyting í þágu allra landsmanna og mynd þar að auki væntanlega spara mikil útgjöld, ekki veitir nú af.
Ísland verði eitt lögregluumdæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |