Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Elsti sonurinn þrítugur í dag
20.11.2008 | 10:44
Snæfell og KR hafa harða hildi háð síðustu árin.
mbl.is/Golli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stormur orðinn ársgamall.
9.11.2008 | 19:06
Hann Stormur okkar er orðinn eins árs, átti afmæli þann 29. okt. og í dag var haldið uppá afmælið. Á myndinni til vinstri hefur hann nýlokið við að blása á eina kertið sitt, enda aðeins ársgamall. Á myndinni til hægri er hann að taka upp pakka með aðstoð frá frænku sinni Írisi Lilju.
Foreldrar hans fengu Torfastaðina lánaða til að taka á móti gestum sínum en íbúðin þeirra á Holtsgötunni er ekki hæf til gestamóttöku enda hafa farið fram miklar framkvæmdir þar. Búið að byggja og opna inní nýju stofuna en þá þarf að þrífa og svo á að freista þess að leggja parket á gólfið. Mikið verk enn framundan hjá Margréti og Fannari í íbúðinni.
Ég hef ekki skrifað lengi á bloggið mitt þó hef ég haft nóg að gera. Stóðhestarnir Gautrekur og Hjálprekur eru verkefni mitt daglega, hef getað hreift þá á hverjum degi svo þeir eru að komast í gott stand. Nýlega fékk ég það verkefni að freista þess að standa í vinnu við að koma á laggirnar veiðideild í veiðifélagi Árnesinga. Nýtt fyrir mig að vinna þá vinnu, enda hef ég ekki áhuga á að veiða lax. En ég hef áhuga á að styðja laxarækt í Tungufljóti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2008 kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hilmar Örn Agnarsson kvaddur 27. sept. 2008.
30.10.2008 | 15:19
Mér finnst þetta svo fín mynd af þeim Ósk og Björt sem hann Bragi Hauksson tók á kveðjutónleikunum sem haldnir voru til heiðurs Hilmari Erni í Skálholti þann 27. sept s.l. að ég mátti til með að setja myndina á bloggið mitt. Þakka Braga kærlega myndasendinguna.
Þarna syngja kórarnir aukalag Biskupstungnalagið eftir Bjarna Sigurðarson frá Geysi. Hilmar Örn náði í Björt til að syngja með en þessi stund var mjög táknræn. Björt og Ósk byrjuðu báðar að syngja í Barnakór Biskupstungna undir stjórn Hilmars Arnar en kórinn var stofnaður 1991 og þær báðar litlar stúlkur í Reykholtsskóla.
Kórarnir hans Hilmar eru í baksýn, Barna-og Kammerkór Biskupstungna, Kammerkór Suðurlands og Skálholtskórinn sem nú hefur lagt sig niður og hætt enda enginn stjórnandi né organisti verið ráðinn í Skálholt ennþá.
Stjórnarskipti í spilunum?
20.10.2008 | 10:02
Sagan segir að Vinstri grænir hangi á forsætisráðherra og bjóði honum stjórnarskipti. Ögmundur sé tilbúinn í stól fjármálaráðherra.
Davíð Oddson á að vera hönnuður hugmynda um stjórnarskipti, hann hefur aldrei þolað Ingibjörgu Sólrúnu og nú vill hann að Vinstri grænir komi inní stjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Sel þetta ekki dýrara en ég keypti. Væri svo sem ekki hissa. Man eftir mörgum tilraunum Davíðs, til að hafa áhrif á stjórn Reykjavíkurborgar og að ná þar völdum. Skipti um borgarstjóra, hafði áhrif á framboð manna til að styrkja þá í komandi kosningum um borgina en allt mistókst.
Vonandi eru þetta bara gróusögur og vonandi ber núverandi stjórn gæfu til að taka á málum ekki seinna en nú. Ákveða að sækja um aðild í ESB og að fá lán hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum strax.
Stjórnvöld skilningslaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ráð Þorvaldar Gylfasonar....
13.10.2008 | 09:36
Ingibjörg vill að við leitum aðstoðar hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og ég hef verið hlynnt því að leitað væri til fagfólks sem kann til verka.
Þorvaldur Gylfason gaf skýr ráð í Silfri Egils fyrir viku. Hann vildi að Íslendingar leituðu til Svía, og Norðmanna. Þeir ættu sérfræðinga í að taka á erfiðleikum álíka okkar. Hann sagði Svía hafa unnið þrekvirki í fjármálakreppu sem reið yfir þá um 1990. Ég varð mjög hrifin af ráðum Þorvaldar og minni á þau hér nú þegar Ingibjörg Sólrún talar. Ég óska henni góðs bata.
Nú spyr maður sig hvort ekki eigi að gera breytingar í stjórn landsins, og að Samfylkingin leiði breytingar sem framundan eru í uppbyggingu fjármálakerfisins og uppbyggingu landsins.
Ingibjörg Sólrún: Fyrst IMF og svo ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12. október afmæli Bíbíar og Dídíar...
12.10.2008 | 11:42
Í dag á elskuleg tengdamóðir mín Sigrún R. Steinsdóttir afmæli. Hún er í dag á Borgarspítalanum, þar sem hún fékk mikinn svima á miðvikudaginn var. Hún er sem betur fer í góðum höndum lækna og hjúkrunarfólks, og verður vonandi frísk fljótlega. Ég óska tvíburunum Bíbí (Sigrúnu) og Dídí (Þórdísi) innilega til hamingju með afmælið. Ég stenst ekki freistinguna að setja inn nýja mynd af Bíbí sem ég tók fyrir fáeinum mánuðum í útskriftarveislu Elds sem við héldum honum 14. júní s.l á Njálsgötunni.
Alltaf jafn flott og falleg hún amma Bía.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslenska verktaka og starfsfólk
9.10.2008 | 16:04
Samiðn vill láta endurskoða samninga um skólabyggingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Davíð sigri hrósandi í Kastljósi
8.10.2008 | 09:15
Brown hótar aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég hef nokkrum sinnum lent í svo miklum erfiðleikum að á meðan þeir gengu yfir var erfitt að sjá hvað var handan þeirra. Erfiðast var að þurfa að horfa á slys, þar sem yndislegur drengur og vinur dó. Sú reynsla var hræðileg og kennir manni að ekki er hægt að sjá fyrir öllu og maður verður mjög vanmáttugur.
Svo varð seinna alveg hræðilega erfitt að verða fyrir lygum sem þurfti að berjast gegn, svo lygin og óvildin ylli ekki fjölskyldunni hræðilegum skaða og mannorðsmissi. Það varð verkefni sem þurfti að kljást við og þegar upp var staðið gerðu verkefnin það fyrir okkur að lífið var endurmetið og við það sköpuðust ný tækifæri.
Líf mitt hefur alltaf verið gott. Ólst upp við mikla umönnun og umhyggju. Foreldrar mínir og systkini höfum alltaf átt gott samband, við miklir vinir og félagar.
Börnin mín eru æðisleg, við erum miklir vinir og þau standa sig vel, líður vel og eiga mjög góða vini og maka. Ekkert er mikilvægara en gott samband við þá sem maður elskar.
Stundum hef ég staðið andspænis miklum erfiðleikum. Erfiðleikarnir urðu verkefni sem nauðsynlegt var að takast á við og þegar frá líður hafa þeir skapað ný tækifæri og gert líf mitt ríkara.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var í viðtali áðan, stödd í New York nýkomin úr erfiðri aðgerð og hún sagði einmitt þetta "að erfiðleikar fælu alltaf í sér tækifæri." Nú er bara að sjá tækifærin, grípa þau og láta þau verða til góðs. Munum bara að andbyr þótt erfiður sé, getur alltaf bætt líf okkar, gerir okkur reynslunni ríkari og verðmæti lífsins verða skýrari.
Helgin hjá okkur Torfastaðafjölskyldunni var æðisleg. Björt, Eldur, Fannar, Birgir, Guðrún og Margrét og auðvitað Stormur komu og við borðuðum saman á laugardagskvöldið. Kristján og Ingibjörg foreldrar Guðrúnar komu líka og það var ægilega gaman að hafa þau. Svo fóru allir í veiði. Bændadagar í Tungufljóti og heilmikil veiði þrátt fyrir að áin væri ansi köld. Í byrjun dags alveg við frostmark. Samt fengust 7 laxar og veiðimenn komu glaðir heim.
Ég er lúin eftir helgina en það er bara gaman, vorkenni þeim sem hafa verið á fundum alla helgina að vinna í efnahags-og bankamálum og ekki séð fyrir endann á hvernig fara.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til hamingju KR-ingar, frábært upphaf á leiktíð
6.10.2008 | 08:34
KR-ingar fögnuðu alla helgina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)