Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Raunveruleg staða að koma í ljós
5.2.2009 | 13:04
Mer reiknast til að 1.800 milljarðar króna séu ekki til hjá Kaupþingi og þá virðast Íslendingar þurfa að standa skil á þessum milljörðum, eittþúsund og áttahundruð eru milljarðararnir.
Búnaðarbankinn síðar KB banki og svo Kaupþing, var seldur eða gefinn S hópnum á nokkra milljarða króna, held það hafi verið undir 10 milljörðum.
Stjórnvöld seldu bankann, bankamálaráðherra Valgerður Sverrisdóttir framsóknarkona sá um þann gjörning. Nú er komið að okkur að borga brúsann, þökk sé Framsókn og Sjálfstæðisflokki frjálshyggjunnar.
Kaupþing skuldar 2432 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sveitarstjórnarfundur Bláskógabyggðar í dag, kóræfing í kvöld
3.2.2009 | 19:23
Ég var á fundi sveitarstjórnar í dag. Að mínu frumkvæði var til umræðu samningur um útleigu á afréttarhúsunum á Kili. Sveitarfélagið sá sjálft um að leigja ferðamönnum aðstöðuna í Fremstaveri, Árbúðum og skálann í Svartárbotnum til sumarsins 2006. Eftir það var einkahlutafélaginu Gjásteini leigð aðstaðan og Loftur og Vilborg hafa séð um að leigja aðstöðuna út til ferðaþjónustuaða og ferðamanna undanfarin tvö sumur.
Mér finnst áríðandi að allir sem kaupa þjónustu af Gljásteini séu ánægðir með að leigja aðstöðu okkar Tungnamanna en afréttarhúsin hafa öll verið byggð af áhugafólki, íbúum í Biskupstungum sem hafa haft áhuga á afrétti sínum og hafa viljað byggja upp aðstöðu þar. Ég var og er mikil áhugamanneskja um þjónustuuppbyggingu á Kili og beitti mér mjög fyrir uppbyggingu þar einkum á fyrstu árum mínum í sveitarstjórn. Settist fyrst í sveitarstjórn Biskupstungna vorið 1990 og sat þar til vors 1998. Fór svo aftur inn vorið 2002 í sveitarstjórn Bláskógabyggðar.
Eftir fundinn og utan dagskrár var rætt um brúarbyggingu yfir Hvítá hjá Bræðrartungu. Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar tvö að Vegagerðin muni bjóða verkið út fljótlega. Vona að það gerist næstu daga.
Í kvöld er æfing hjá Skálholtskór hinum heitna. Hilmar Örn kemur og við æfum með honum í Aratungu. Áætlað er og æft er fyrir að fara til Berlínar í byrjun sumars og syngja þar í kirkjum.
Um helgina var staða organista við Skálholt loksins auglýst. Nú verður spennandi að sjá hvort sveitarstjórn stendur við eigin orð um stuðning við söng- og kórastarf hér í Bláskógabyggð.
Atvinnuleysi rúmlega 8%
2.2.2009 | 11:20
13.280 á atvinnuleysisskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þorrablótið var haldið í gær í Aratungu.
Reyndar er hefð fyrir því að halda blótið fyrstu helgina í Þorra en Magnús Einarsson Kjarnholtum varð sextugur þann 24. og hann hélt mikla veislu í Aratungu á afmælisdegi sínum. Það var reyndar nokkurs konar Þorrablót enda mikill þorramatur, vel veitt af víni og bjór og allt mjög höfðinglegt hjá honum Magnúsi stórbónda og hrossaræktanda.
Það voru þrettán manns hjá mér í troginu. Börnin mín þrjú og tvö tengdabörn komu með okkur, en Guðrún komst ekki erfið prófavika framundan og hún vildi undirbúa sig. Þröstur og Þórunn létu sig ekki vanta. Ella, Garðar, Áslaug og vinur hennar voru með okkur í trogi. Æðislega skemmtilegt kvöld með góðum vinum og fjölskyldu.
Í dag fór ég til Rvk. á flokksstjórnarfund Samfylkingarinnar og tók þátt í að samþykkja nýja stjórn og ráðherra. Ingibjörg Sólrún nær vonandi heilsu næstu vikurnar og ég óska Jóhönnu og félögum mínum í Samfylkingunni alls hins besta í verkefnum sínum næstu 80 daga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Já kynjakvóta í lög
16.1.2009 | 12:47
Jafnrétti næst aldrei alveg, því ekki að reyna kynjakvótaskiptingu.
Ég velti því stöðugt fyrir mér, á árum mínum með Kvennalistanum, hvernig á því stæði að við næðum ekki meiri árangri í jafnrétti kynjanna, þrátt fyrir stöðuga baráttu, skemmtilegar baráttuaðferðir og æðislegar forystukonur.
Fyrir mörgum árum gerði ég mér ljóst mitt svar. Ég móðir drengjanna minna og dóttur, styð drengina (og líka stúlkuna) eins og ég get og þetta yfirfærum við konur á karlana okkar. Þetta yfirfæra dætur okkar líka á sína karla. Við viljum ekki vera í vegi þeirra, viljum hjálpa þeim, styðja við þá og þá erum við númer tvö. Allt í lagi í eigin lífi og gott að vera góður við sína. Það er móðurhlutverkið sem stendur okkur fyrir þrifum, hlutverkið sem er svo yndislegt. Þetta er klemman og hún er líffræðileg og andleg. Ég vildi ekki hafa misst af því að vera móðir, annast mína og styðja við þá. Það er það skemmtilegasta sem ég hef gert. Það er mikilvægara en eigin frami. Ég reyndi að koma á jafnrétti í uppeldi barna minna, en strákarnir eru þrátt fyrir það þakklátir stuðningi og þjónustu kvenna sinna.
Ég er ekki að mæla þessum málflutningi bót þetta er bara svona hjá mér, þrátt fyrir að ég þoli ekki að jafnréttið nái ekki betur fram að ganga. Reynum því kynjakvódann.
Íslendingar væru sennilega ekki í þeirri stöðu sem nú er uppi ef konur hefðu verið ráðandi eða jafngildar á flestum sviðum þjóðfélagsins.
Félagsmálaráðherra: Aðhyllist kynjakvóta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2009 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Guð láti gott á vita
15.1.2009 | 11:43
Ingibjörg Sólrún lengur frá en áður var talið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Undarleg hún Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
14.1.2009 | 17:43
Frétt í ríkisútvarpinu hljómaði svona í dag kl. 16:00. Hér er fréttin af ruv.is:
Ráðherra hótaði ekki, aðvaraði bara
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur segir enga hótun hafa falist í orðum vinkonu sinnar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra í aðdraganda borgarafundar í Háskólabíói í fyrrakvöld.
Hún lítur fyrst og fremst á varnaðarorð sem aðvörun og vinargreiða. Á borgarafundinum sagði hún Í dag fékk ég skilaboð frá einum ráðherra í ríkisstjórninni þar sem mér var ráðlagt sjálfrar mín vegna að tala varlega hér í kvöld. Af því tilefni vil ég segja þetta. Allt í lagi... Hún náði ekki að klára því margir bauluðu í Háskólabíói þegar orðin féllu.
Sigurbjörg neitaði að gefa upp hver hefði ráðlagt henni þetta. Síðdegis í gær barst yfirlýsing frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þess efnis að hún hefði viljað ráðleggja vinkonu sinni að nálgast ræðu sína af varfærni og gæta þess að ganga ekki á faglegan heiður sinn.
Ég ber ómælda virðingu fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og efast ekki um að hún hefur meint vel þegar hún sendi Sigurbjörgu skilaboð sín. Öllu er hægt að snúa á haus og gera tortryggilegt, ekki síst þessa dagana.
Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
KR - Keflavík 95-64
12.1.2009 | 00:32
Fannar Ólafsson: Undirbjuggum okkur mjög vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hestar lifandi verur
4.1.2009 | 11:56
Mín samúð er hjá reiðmanninum sem meiddist vegna ytri aðstæðna sem hann réð ekki við. Af þessu tilefni langar mig að minnast á alla sem eru í umferðinni. Hér í Biskupstungum er oft ekið mjög kæruleysislega framhjá reiðfólki og ljóst að fólk hefur ekki hugsun á því að hestarnir eru lifandi verur, þeim bregður og geta tekið uppá að hreyfa sig á annan hátt en reiðmaðurinn á von á. Flugeldur gerir flestum hrossum hverft við og það gera líka bílar sem koma óvænt að hrossi. Þá er mikilvægt að ökumaðurinn hægi ferðina taki tillit til þess að hrossið er lifandi skepna.
Mæli með að við tökum upp meiri tillitssemi við hvort annað nú þegar illt er í ári hjá flestum. Munum eftir að athafnir okkar hafa áhrif á aðra. Vonandi ekki þó með þeim afleiðingum sem konan á hestinujm varð fyrir. Megi hún ná bata fljótt og vel.
Hesturinn fældist við flugeld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3. janúar 2009.
3.1.2009 | 17:39
Ég hef ekki skrifað nýtt ártal fyrr en nú. Árið 2009 nýhafið. Fyrstu þrír dagar ársins hafa verið einstaklega hlýir hér á Torfastöðum um 7 stiga hiti í morgun. Hitanum fylgir rigning og birtan lætur á sér standa. Þrátt fyrir að veðrið sé hlýtt og gott þá á ég erfitt með að ríða út og temja hross enda færið sérlega þungt, mikil drulla og erfitt fyrir hrossin að ganga í þessu færi. Svo verð ég löt í myrkrinu og valdi að lesa blöðin í eftirmiddaginn.
Mér fannst grein eftir Bjarna Harðarson í Morgunblaðinu góð og hvet fólk til að lesa hana. Ég finn ekki útúr því að setja hér eins og fínir bloggarar gera og svo kemur greinin en hér er slóðin inná hana: http://pappir.mbl.is/index.php?s=981&p=24729&a=93289 Sé reyndar að fólk verður að hafa áskrift af Morgunblaðinu til að geta lesið greinina.
Hlustaði á Vikulokin á rás eitt í morgun. Nú eru margir spámenn sem hafa nýja sýn á málin og allt gott um það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)