Gautrekur IS2003188503 frá Torfastöðum í kynbótadómi

Gautrekur í braut  11.6. 2009 
Ég var ánægð með hann Gautrek okkar í dag.  Mér finnst hann hafa mjög flotta líkamsbyggingu en dómarar gáfu honum samt ekki hærra en 8,06 fyrir byggingu. 
Það þýðir víst ekki að deila við dómarann en okkur finnst einkunnin 8,0 fyrir háls og herðar ansi nánasarleg og illa rökstudd.
Móðir hans Randalín var með 9,0 fyrir háls og herðar og okkur finnst hann eiga a.m.k. einkunnina 8,5.  En dómararnir ráða. 
Afkvæmi G autreks eru afar hálsfalleg.  Gautrekur fer í yfirlitssýningu á sunnudaginn eftir hádegi.  Þá kemur í ljós endanleg niðurstaða.

GAUTREKUR byggingardæmdur 11.6.2009

Gautrekur háls og herðar

 

 


Æfing Skálholtskórs í Berlín í Getshemanekirkjunni 6.6.2009

Æfing í Getshemeinekirkju, Berlín 6.6.2009Ég tók engar myndi sjálf í Getshemanekirkjunni en hér er mynd frá Páli Skúla af æfingunni.  Þarna er Skálholtskórinn ásamt kirkjukór Elisabetar.  Í honum voru um 110 manns.  Svo er þarna líka barnakórinn hennar, það hafa verið um 50 börn.  Alls eru því samankomnir um 180 söngvarar til að flytja íslenskt tónverk.  Verið var að æfa Brynjólfsmessu Gunnars Þórðarsonar en hana fluttum við til Berlinan.  Fluttum þannig út kirkjutónlist Gunnars Þórðarsonar og Gunnar Þórðarson var með, höfundurinn sjálfur.  Það þótti Berlínarbúum og auðvitað okkur líka, alveg æðislegt.  

Brynjólfsmessa Gunnars Þórðar, var frumflutt fyrir þremur árum síðan af Skálholtskór, kór Keflavíkurkirkju og kór Grafarholtskirkju.  Nú hefur Brynjólfsmessa verið flutt í Getshemanekirkjunni í Berlín og það var Skálholtskór og Hilmar Örn Agnarson sem voru forsprakkar þess.  Við klöppum okkur á bakið fyrir það. 

Skálholtskór upplýsti sendiherra Íslands í Berlín í byrjun árs, um að við yrðum með stóra tónleika í Berlín og auðvitað vonuðum við að sendiherran sýndi okkur þann sóma að bjóða okkur til sín en það gekk ekki eftir.  Vorum ansi vonsvikin yfir því, enda töldum við okkur hafa vel til unnið að fá klapp á bakið frá íslenskum yfirvöldum.   En þeir virðast ekki sjá gildi þess að útrás Íslendinga sé með þessum hætti þ.e. í formi þess að flytja út menningu og list frá Íslandi.  Það verður ekkert hrun hjá okkur enda skuldsetjum við engan nema e.t.v. okkur sjálf í útrás okkar.


Skálholtskórinn í Berlín

Við Óli vorum að koma frá Berlín. Skálholtskórinn fór með elskulegum stjórnandKórmeðlimir og makar fyrir utan Hótel Holliday Inn í Berlín.a sínum honum Hilmari Erni Agnarssyni.  Ferðin var ákveðin í september 2008, stuttu eftir kveðjutónleika sem haldnir voru fyrir Hilmar í Skálholti rétt fyrir bankahrunið  Smá peningur var til í sjóði, sem kórinn hafði safnað og ákveðið var að eyða honum, enda hefur kórinn formlega verið lagður niður.  Enginn nýr kór hefur verið stofnaður í Skálholti enda enginn organisti kominn til starfa svo við sungum undir okkar gamla nafni. 

Elísabeth hin austurþýska, kórstjóri og góð vinkona Hilmars tók á móti okkur með miklum virtum.  Á flugvellinum mættum við nokkrum kórmeðlimum frá hennar kór og þær leiddu okkur til hótels okkar í lestum og sporvögnum, seint á fimmtudagskvöldinu. Holiday Inn hið fínasta hótel. 

Föstudeginum var eytt í að kynnast Berlin aðeins, sumir fóru undir leiðsögn þýskara aðrir lögðu sig eftir að læra á samgöngukerfið, svo þeir kæmust leiðar sinnar.

Á laugardeginum var æft í Getshemanekirkjunni.  Á æfingunni áttuðum við okkur á hve verkefni okkar og Elísabetar var stórkostlegt. Skálholtskórinn hafði 25 söngvara, kór Elisabetar 100 manns og hljómsveitin 20 manns. Okkur fylgdu bestu Elisabeth kynnir Skálholtskórinn  fyrir þýskum vinumhljóðfæraleikarar landsins, Hjörleifur Valsson, Þorkell, Kári Þormar og Ásgeir pákuleikari.

Tónleikarnir voru svo haldnir kl. 17:00.  Kórarnir fluttu saman Berlínarmessu eftir Arvo Pärt og Brynjólfsmessu eftir okkar ástsæla Gunnar Þórðarson.  Auk þess söng Skálholtskórinn tvö íslensk lög milli messuflutninganna. Freyja G klarinettuleikari og íbúi í Berlín lék með hljómsveitinn þrjá klarinettukonserta og svo var nú punkturinn yfir i-ið sá að Gunnar Þórðarson og frú voru með okkur.  Það þótti áheyrendum mjög skemmtilegt.

Ég skrifa meir um ferðina næstu daga.

 

Skattahækkanir fjármálaráðherra

Ég fékk mikið svartsýniskast á leiðinni í vinnuna í morgun þegar ég heyrði að ráðherra hefur ákveðið að leggja á eldsneytisskatt.  Olían mun hækka um rúmar 12 krónur líterinn að sögn Runólfs form. FÍB. 

Þetta hlýtur að þýða það að fólk heldur í við sig varðandi ferðalög í sumar.  Ég ætla allavega ekki að aka um landið og eyða þannig peningum sem ekki eru til.  Nú verður maður bara heima, reynir að bíða af sér storminn.  En hvað þýðir það fyrir þjóðarbúið ef fólk minnkar mikið við sig í eldsneytiseyðslu.  Jú ferðaþjónustan verður ekki eins mikil og vonir hafa staðið til.  Velta þjóðarbúsins minnkar.  Veltuskattar minnka og þar með tekjur þjóðarbúsins af veltusköttum.  Hverslags hugsun er það að hækka á almúgann neysluskatta?   Gera hagfræðingar sér ekki grein fyrir því að þá er líklegt að veltuskattar lækki.  Tekjur ríkisins minnki. 

Fólk eins og ég, sem aldrei vill skulda neinum neitt, stendur sig eins vel og það getur er ofurselt ástandinu eins og allir aðrir.  Hverlags djöfulsins staða er þetta eiginlega?  Fyrirgefið orðbragðið.  Nú og svo var verið að tala við formann læknafélagsins og hún fullyrti að landflótti yrði í læknastétt.  Auðvitað koma læknar menntaðir erlendi ekki heim í þetta andstyggðar óvissuástand.

Svo verðum við örugglega sett í það helsi að settir verða á okkur eignaskattar.  Þá getur maður sig ekki hrært, ekki selt neitt en verður að greiða ríkinu fyrir að hafa verið sparsamur og að hafa eytt ævistarfinu í að nurla sér saman fyrir jörð, sem nú er óseljanleg nema e.t.v. á brunaútsölu.

Já lífið á Íslandi er ekki spennandi þessa dagana  þó ég eigi ekki að kvarta, enda aldrei tekið rándýr neyslulán.  Finnst nú nóg samt. 


mbl.is Bensínið aldrei dýrara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tungufljótsdeild stofnuð í Veiðifélagi Árnesinga

Í gærkvöld þann 26. maí 2009, samþykktu veiðirétthafar í Tungufljóti að stofna veiðideild í Veiðifélagi Árnesinga.  Eftirfarandi var samþykkt: 

Veiðiréttarhafar í Tungufljóti, frá fossinum Faxa að ármótum Hvítár (26 jarðir) samþykkja að stofnuð verði veiðideild (Tungufljótsdeild) í Veiðifélagi Árnesinga.

Fyrir fundinum lá einnig tillaga að samþykktum fyrir Tungufljótsdeild en hún fékkst ekki samþykkt það vantaði tvö atkvæði uppá að 2/3 hlutar veiðirétthafa segðu já við samþykktunum.  Mér fannst mjög sérkennilegt að þegar fyrir liggur að deildin sé orðin til, þá geti fólk ekki samþykkt lög fyrir deildina.  Á meðan samþykktir eru ekki til þá hefur stjórnin ekki möguleika á að leigja ána út hvað þá að geta gert ræktunaráætanir og slíkt.  En við höldum bara annan fund fljótlega og þá þarf ekki nema helming atkvæða til að samþykkja samþykktirnar.  Þetta tefur málið aðeins en ekki mikið. 

Vilhjálmur Einarsson skammaði mig fyrir að áin er í útleigu.  Hann virðist ekki gera sér grein fyrir því  að undirbúningsnefndin hefur ekki haft neitt umboð til að semja um neitt varðandi veiðimál í Tungufljóti.  Undirbúningsnefndin hefur einungis haft það verkefni að búa til löggiltan félagsskap um Tungufljótið neðan fossins Faxa, annað hefur ekki verið verkefni hennar.  Ég benti fundarmönnum  á að úr því að samþykktirnar náðu ekki í gegn, þá hefur stjórn veiðideildarinnar mjög takmarkað umboð til að taka á málum í Tungufljóti.  Getur ekki samið um veiði í ánni, fiskirækt, né neitt annað.  En það kemur fljótlega, þegar samþykktir fyrir Tungufljótsdeild hafa verið samþykktar.  Við tökum okkur svona hálfan mánuð í það.


Loksins eru millifærslurnar rannsakaðar

Ég er alveg viss um að inni í bankakerfinu, eru upplýsingar um millifærslur fjármagns sem ekki þóttu eðlilegar.  Oft hafa komið upp slík mál í fréttum, bent á stór lán til eigenda bankanna o.fl. o.fl. 

Ábendingar höfðu borist um það þegar fyrir áramót en náin tengsl samstarfsaðila og vináttu og fjölskyldubönd hafa örugglega latt þá sem vildu koma upp um vafasamar millifærslur.  Svo vissu menn bara ekki hvernig átti að taka á slíkum ábendingum og örugglega enginn lagarammi fyrir hendi til að kæra menn.  Gott að loksins skuli hafa verið fenginn fagaðili til að taka á málinu.  Vonandi er það ekki of seint.  


mbl.is Rannsaka óeðlilegar millifærslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tröppurnar á Torfastaðakirkju standast ekki karla sem saga og brjóta og rífa upp gangstéttar

Við Torfastaðahj18. maí 2009 kl. 9.30  Kirkjutröppurnar brotnar niðurón vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið þegar kl. 9:30 upphófst mikill hávaði, her manna mættur að kirkjunni og beytti steinsögum og sleggjum á kirkjutröppurnar.  Þeir rifu líka upp gömlu stéttina og sú nýja er einnig undir.  Sennilega tíu ungir karlar sem tala sumir framandi mál eru hér fyrir utan á tveimur bílum vopnaðir allskonar tækjum og tólum.  Nú brjóta þeir og bramla.  Þetta eru greinilega öflugir karlar að sunnan komnir til að taka til í kirkjugarðinum á Torfastöðum. 


Ánægjuleg sjóðheit Eurovisionhelgi afstaðin. Ég þakka yndislega daga með fjölskyldunni.

Helgin var afar ánægjuleg hjá mér.  Veðrið sólríkt og heitt, í gær voru 18 stig hér í Tungunum.  Líka í Reykjavík á meðan við dvöldum þar. 

Fannar og Margrét buðu okkur í dásamlegan mat á laugardagskvöldið og við horfðum á Jóhönnu Guðrúnu preforma, svaka vel gert hjá henni, alveg óaðfinnanlegt.  Svo fylgdumst við með stigagjöfinni og vorum 17. maí 09 Gunnar, Sigga og Ólafur.stolt yfir að vera Íslendingar.  Það er langt síðan hægt hefur verið að fyllast þjóðarstolti svo það var mjög gaman.  Íslendingar áttu mikið að þakka Jóhönnu Guðrúnu þessa helgina.  Stormur var mikill gleðigjafi eins og alltaf, leik við hvern sinn fingur yfir sönglagakeppninni.

Fórum og hittum Bíbí áður en við renndum okkur úr bænum, hún er á St. Jósefsspítala til rannsóknar.  Verður vonandi komin heim innan nokkurra daga.

Sigga og Gunnar hafa verið í bústaðnum um helgina og við kölluðum á þau í mat á sunnudagskvöldið.  Það var alveg ómögulegt að vera inni, svo við borðuðum í æðislegu veðri úti og sátum þar til tæplega 22:00 en þá vorum við að tapa sólinni bak við heiðina.  Sigga dásamaði verðrið og benti á að enn væri bara 17. maí, þjóðhátíðardagur Norðmanna.  Í tilefni af því var myndin tekin.  18 stiga hiti, sól og blíða í allan dag.  Ummmm.


Gott svar hjá Jóhönnu þótt ég skilji ekkert hvað hún er að segja.

Ég tek það fram að ég er samherji Jóhönnu og að ég styð hana heilshugar.  Verð þó að segja að svar hennar um skattahlutfall 2005-2007 segir mér ekki mikið.  Ég held að skattar verði miklu minni en 35% þetta árið nema að skattalögum verði breytt.  Veltuskattar hljóta að verða miklu minni og útsvar og staðgreiðsla líka.  Það þýðir að leggja þarf á nýja skatta.  Hátekjuskatta og eignarskatta.  Aukna neysluskatta auk einhverra skatta sem ........

Mörg okkar eru að reyna að standa okkur hafa ekki tekið þátt í tryllingnum sem hefur riðið yfir landi.  Ég hef t.d. dregið úr neyslu eins og ég get, en með því greiði því minni neysluskatta.  Það er í sjálfu sér tíveggjað fyrir samfélagið.

Ég skil ekki hagfræðina í því að negla okkur sem erum að reyna að standa okkur, upp við vegg og láta okkur hanga á horriminni, greiða litla veltu og neysluskatta.  Legg því til að við reynum að auka veltuna og látum skattana koma inn í ríkissjóð og til sveitarfélaganna á þann hátt. 

Ég bið stjórnvöld setja okkur heiðvirða íbúa landsins ekki alveg í klemmu sem við sjáum ekki hvernig við geutum komið okkur út  og setja okkur þar að auki í skattaþrældóm.  Eiganarskattur af venjulegum sparnaði var og er ósanngjarn. Fólk er skattlagt ef það eyðir ekki sparnaði sínum jafnóðum heldur leggur til hliðar og eykur eignir.   Hvaða sanngirni er í því að skattleggja þá sem eyða ekki öllum sínum sparnaði í sumarferðir t.d. til útlanda?

Er eitthvert réttlæti í því að mismuna fólki sem leggur sparnað sinn til hliðar og gerir úr honum  eignamyndun?  Hvaða sanngirni er í því að leggja á þetta fólk eignarskatt? 


mbl.is Skattar svipaðir og 2005-2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tungnaraddir undirbúa útrás til Berlínar

Við erum bara lítill kór en ætlum okkur stóra hluti.  Erum að undirbúa þá.  Útrás og Evrópusigrar í Berlín.

Það var afar gaman hér á Torfastöðum í kvöld.  Tungnaraddir héldu æfingu og Tobba sá um hana.  Þau æfðu Brynjólfsmessu Gunnars Þórðarsonar.  Ég er alveg þegjandi hás og gat ekkert sungið með þeim og svo er ég líka með hitavellu.  Dingaði mér bara í húsinu tók nokkrar myndir til að setja á bloggið mitt.  Tungnaraddir æfing 11.5.2009 Torfast. (1)

Sé ekki hvernig ég á að geta kennt á morgun svona þegjandi hás, nema að kraftaverk eigi sér stað í nótt öll hálsbólga hverfi. 

Eftir æfinguna röbbuðu ferðanefnd og stjórn saman og tekin staðan.  Hverjir koma með kórnum og spila,  og svo þetta með einsöngvarana,  t.d. Egill Ólafs.   Þessi mál ekki alveg ljós.  Beðið er eftir okkur með eftirvæntingu í Berlín svo það er eins gott fyrir okkur að koma málum fljótlega á hreint.  Fyrir nokkrum mánuðum töldu menn auðvelt að komast með á lofbrú Flugleiða en það er ekki eins öruggt núna.  En menn munu finna útúr því.  Raggi sveitó er að vinna í málinu skv. nýjustu upplýsingum.  En æfingin gekk vel hjá þeim sem gátu sungið og henni Tobbu sem sá um að stjórna æfingunni.  Þökkum henni öll sem einn.


mbl.is Stærsti kór sögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband