Veiði hætt i Tungufljóti, róleg helgi?
9.8.2008 | 09:23
Erum að ná okkur eftir fjörið sem var í veiðiatinu. Hef ekki staðfestar tölur úr anni en Fjalar mun hafa verið aflahæstur þegar upp var staðið, náði í sex laxa. Högni sonur hans veiddi fjóra laxa, setti þó í fleiri. Björt, Birgir, Andri og Jara veiddu Maríulaxana sína. Fannar fékk tvo og Darri líka. Þá held ég að öll veiðin sé upptalin 18 laxar alls. Ekki slæmt einkum þegar fyrir liggur að flestir eru nýgræðingar í veiði, að ekki sé talað um fluguveiði.
Vaknaði í morgun við vondan draum, einhver hafði skrúfað frá ofninum uppi, en við höfum reynt að loka honum enda grunur um að frárennslið sé skemmt. Nú þurrkum við vatn sem kemur að ofan, rennur í gegnum loft. Slæmt mál, en alltaf sem manni leggst til, til að kljást við.
Karen og Dave komu í lok veiðinnar, eru að koma frá Póllandi og heimsóttu Fannar og Margréti á leið sinni til heim. Þau eru nú í sumarbústað í Grafningnum. Hér er fámennt og góðmennt, aðeins við Óli, Björt og Birgir heima. Eigum von á fólki fljótlega að skoða hross og sumarbústaðalönd.
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.8.2008 kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tungufljótið fullt af laxi.
8.8.2008 | 02:43
Það hefur verið mikil blessun og gleði að fá að njóta fjölskyldunnar og veiðigleðinnar undanfarna tvo daga. Tungufljót þykir mjög skemmtilegur veiðistaður og vanir veiðimenn hamast við að kenna þeim sem ekkert kunna. Allir glaðir og margir hafa náð sínum Maríulaxi. Björt fékk Maríulaxinn í dag og hér koma myndir af því. (því miður fer myndin alltaf af blogginu en hún er í myndaalbúmi). Fannar náði einum laxi, Andri fékk líka lax sinn fyrsta á flugu, í raun Maríulax. Jara veiddi líka maríulaxinn sinn svo það voru margir sigrar unnir hér í dag. Högni er aflakongurinn, hann og Fjalar hafa samtals veitt 9 laxa. Darri fékk tvo laxa í morgun.
Veiðimennirnir eru sammála um að mikill fjöldi laxa sé í ánni, varla þverfótað fyrir löxum. Laxinn sést allsstaðar. Allir sammála um að veiðin hafi verið frábær skemmtun.
Sigrún mágkona kom með mörg kíló af humri og eldaði margra stjörnu humarsúpu. Þvílíkt hvað hún var góð. Í fyrramálið ætlar veiðifólkið að koma sér af stað kl. 6:30 svo það er ekki til setunnar boðið.
Vinir og fjölskylda | Breytt 9.8.2008 kl. 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Burt með borgarstjórann í Reykjavík.
7.8.2008 | 16:45
![]() |
Skipt um fulltrúa í skipulagsráði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tungufljót, mikil veiði
7.8.2008 | 16:13
Fjölskyldan hefur verið að veiðum í Tungufljóti síðan í gær. Ég fór áðan til þeirra og tók af þeim meðfylgjandi mynd sem er tekin við fossinn Faxa í Tungufljóti. Sex fiskar fengust í gær, Högni fékk fjóra og Fjalar tvo. Högni var gestgjafi okkar í hádeginu, bauð uppá laxa, þeir voru mög góðir. Áin var hvíld frá kl. 13 til 16 í dag og nú eru allir farnir aftur í veiði. Í morgun fékk Fjalar stærsta laxinn sem hópurinn hefur fengið til þessa, 12 punda lax, hvorki meira né minna. Það er rosa fjör, allir eru að hamast við að læra að kasta því það má bara veiða á flugu. Sumir með tvíhendu og aðrir einhendu. Segi frá því hér, þótt ég þekki ekki muninn.
Gunnar mágur varð að fara í morgun til að sinna áríðandi erindi, vont stundum að vera bæjarstjóri, en Andri er hér enn og því fulltrúi fjölskyldunnar. Óli, Fannar Björt og Birgir eru fulltrúar Torfastaðafjölskyldunnar í veiðinni, en ég elda og næri mannskapinn. Hilmar, Darri og Jara eru líka að veiða en Freyja er heima að vinna. Pabbi kom í heimsókn í gær og var með mér en ég undirbjó mat í allt gærkvöld. Hann fór núna rétt áðan. Sigrún mágkona er á leiðinni.
Nú er komin hellirigning, það getur ekki verið betra þegar fólk er að veiða.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æðisleg verslunarmannahelgi
5.8.2008 | 13:32
Hér á Torfastöðum hefur verið mikið um dýrðir undanfarna daga. Fannar og Margrét buðu vinum sínum að setja upp tjaldbúðir á Torfastöðum og hoppukastali var settur upp fyrir börnin. Söngskemmtun á laugardagskvöldið, Ingó í Veðurguðunum skemmti mannskapnum. Eldur og Guðrún voru hér um helgina og þess utan komu Öddi og Ásta og Steinunn í heimsókn. Björt og Birgir voru í Hvalfirðinum með fjölskyldu Birgis.
Hestamannafélagið Logi hélt sitt árlega hestaþing um helgina. Logafélagar og gestir kepptu en fram fór gæðingakeppni, töltkeppni og að lokum kappreiðar. Börnin báru af, voru mjög flott. María og Kristinn í Fellskoti létu sig vanta, aldrei þessu vant og mér fannst mikið vanta að þau skyldu ekki mæta. Þau hafa alltaf verið með frá því að ég fór að stunda þessi mót, keppt í mörgum greinum og oftast verið í vinningssætunum.
Ég fékk það hlutverk að vera þulur og stjórna mótinu allan sunnudaginn. Nokkrir hestar frá Torfastöðum kepptu. Gautrekur frá Torfastöðum hlaut 3. sæti í B flokknum. Hjálprekur frá Torfastöðum varð einnig númer þrjú í A flokki gæðinga. Kristinn Bjarni var knapi hans en Fannar keppti á Gautreki.
Hrist frá Torfastöðum og Sólon unnu 2. sæti í B flokknum, hlutu einkunnina 8,48. Fínn árangur. Við máttum því vera ánægð með okkar hlut. Borði frá Fellskoti var ótvírætt konungur mótsins, vann B flokkinn og valinn flottasti hestur mótsins.
Í dag liggur fyrir að taka til og þrífa hér á Torfastöðum enda tekur enn við skemmtun og gleði. Á morgun eigum við von á fjölskyldumeðlimum sem ætla að fara að veiða í Tungufljóti. Fjalar bróðir sá um að panta ána og veiðin hefst eftir hádegi á morgun og stendur fram á hádegi á föstudaginn kemur. Ekkert lát á skemmtun hér á Torfastöðum og vonandi að sem flestir mæti.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heitast 29 stig á Þingvöllum, Bláskógabyggð
30.7.2008 | 16:26
![]() |
Segir hitamet slegið í Hveragerði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26 stiga hiti á Hjarðarlandi, og 27 á Þingvöllum
30.7.2008 | 10:33
![]() |
29 gráður og sólskin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Borgarstjórinn gerir enn í buxurnar
30.7.2008 | 00:46
Ólafur F. virðist leggja sig fram við að tapa fylgi borgarbúa. Fylgið var lítið þegar hann hirti til sín borgarstjórastólinn og það minnkar stöðugt. Hann hendir stuðningsmönnum sínum út úr nefndum borgarinnar, hafnar aðstoðarmanninum þegar hún er ekki nógu þæg að hans mati og nú er henni aftur hafnað af Ólafi F. þar sem hún segir ekki það sem honum er þóknanlegt. Þó segir hún ekki neitt og ég skil ekki að það sem hún sagði skuli hafa verið brottrekstrarsök. Ólafur virðist einræðisherra af verstu gerð, þolir ekki mótlæti og heldur að eigin skoðanir og orð séu betri en annarra. Ja svei. Og þetta er borgarstjóri höfuðborgar Íslendinga.
![]() |
Borgarstjóri skiptir um varaformann skipulagsráðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bilað blogg og borgarstjórinn líka
29.7.2008 | 17:56
Skrýtið, nú þegar bloggið er bilað er ég alltaf að gá hvort ég get bloggað. Geri mönnum ábyggilega erfitt fyrir með því að vera alltaf að reyna að blogga við fréttir en ég get það ekki enn. Svo fer í mínar fínu að útlit bloggsins míns er breytt og ég get ekki heldur breytt því. Veit að viðgerðarmenn hamast við að laga bloggástandið hjá mogganum svo ég ætti bara að hafa mig hæga. En nú virðist ég þurfa sérstaklega að koma með athugasemdir og skoðanir á mönnum og fréttum en ég bara get það ekki. Jú ég get skrifað en ekki tengt mig við fréttir.
Langaði t.d. að hafa skoðun á því að borgarstjórinn hendir konu úr nefnd borgarinnar vegna þess að það sem hún segir við fréttamenn virðist ekki vera honum þóknanlegt. Borgarstjóri hefur marg sagt að hann verði dæmdur af verkum sínum. Vill hann að við dæmum hann fyrir að henda fyrrum aðstoðarkonu sinni úr skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar, bara fyrir það að hún opnar munninn, en segir ekki það sem Ólafi F þóknast að hún segi? Er þetta ekki einhverskonar skoðanakúgun? Vill Ólafur F borgarstjóri fá að ráða því hvaða skoðanir fólkið hans hefur á skipulagsmálum? Er það ekki kúgun að vera rekinn úr nefnd fyrir að opna munninn? Já menn verða og eru vonandi dæmdir af verkum sínum, ekki bara sumu heldur öllum verkum sínum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.7.2008 kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stormur 9 mánaða í dag
29.7.2008 | 14:14

Vinir og fjölskylda | Breytt 30.7.2008 kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)