Mánudagur 28. júlí 2008.
28.7.2008 | 15:41
Það drífur að fólkið í sveitina, eftir hel
gina, Kristinn og Berglind komu fyrir hádegið með börnin tvö Andreu Ósk og Emil Goða og Fannar og Margrét komu í gærkvöld með Storm. Vorum átta í hádegismatnum, gæddum okkur á dýrindis fiskibollum a la mamma. Óli fór á Selfoss til að ná sér í efni svo hægt sé að girða sumarbústaðalandið af, erum hrædd um að fá yfir okkur fjölda nauta ef ekki verður girt sem snarast.
Í gærkvöld komu 5 kórmeðlimir Skálholtskórs auk Hilmars Arnar og sonar hans Andra saman í Skútanum, kjallaranum í Aratungu að setja upp hillur og raða upp nótum og efni sem Hilmar Örn og Skálholtskórinn sálugi eiga. Þetta er efni sem safnast hefur upp undanfarin 17 ár enda hefur Hilmar Örn verið organisti Skálholtsdómkirkju og kórstjóri og tónlistarkennari hér í Biskupstungum síða haustið 1991. Þetta er mikið magn af gögnum og minningum sem raðað var upp í hillur. Gögnin þurftu að fara úr Skálholti fyrir 1. júlí svo fyrir þann tíma komu nokkrir kórmeðlimir saman og pökkuðu öllu niður og fluttu burt.
Hef ekkert heyrt hvað verður í tónlistarmálum grunnskólans næsta vetur, né um ráðningu organista eða tónlistarstjóra í Skálholt, en sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur sem betur fer marg bókað stuðning sinn við kórastarf í sveitinni svo vonandi verður staðið vel að kóramálum barna og ungmenna áfram. Nú liggur fyrir að Kalli, kennari, tónlistarmaður og náinn samstarfsmaður Hilmars Arnar í Reykholtsskóla er á förum, svo sjaldan er ein báran stök. Hann og Gréta munu flytja til Akureyrar. Samgleðst Akureyringum að fá svona flott fólk til sín, þeirra verður sárt saknað hér.
Vinir og fjölskylda | Breytt 30.7.2008 kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blogg,blogg,blogg......
27.7.2008 | 13:28
Yngsti knapinn á Torfastöðum
27.7.2008 | 10:52
Má til með að birta mynd af Stormi, sonarsyni mínum, sem ég tók í gær. Tennurnar fjórar eða fimm sjást aðeins enda er hann skælbrosandi á hestinum sínum, Hnoðreki. Efnilegur knapi og á örugglega eftir að fara á hestana hennar ömmu fljótlega. Ég nýt mikillar blessunar að fá að njóta Storms og fjölskyldu hans, hér á Torfastöðum í sumar. Fannar og Margrét eru að byggja á Holtsgötunni og búa hér á meðan. Þau skruppu í bæinn í gær, hún að vinna, en koma í dag eða kvöld.
Kristinn Bjarni og Berglind hafa verið með okkur á Torfastöðum undanfarnar vikur, ásamt Andreu og Emil Goða. Verð að taka mynd af þeim svo ég geti sett hana á bloggið mitt
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.7.2008 kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uppsveitir Árnessýslu í sól og blíðu.
27.7.2008 | 09:37
Í fyrradag fór hitinn upp í 24 gráður hér á Torfastöðum og í gær fór hitinn í 20 stig. Klukkan 9:00 í morgun var hitinn í Skálholti 15,4 gráður og útlit fyrir mikinn hita í dag hér í Uppsveitunum.
![]() |
Allt að 25 stiga hiti í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Landvernd fer offari
24.7.2008 | 09:29
Ég tel að Landvernd hafi misst stuðningsmenn vegna offors í eigin málflutningi. Verndurnarsjónarmið mega ekki stöðva alla framþróun og ef við megum ekki aka á nútímalegum vegum hvað þá? Samgönguráðherra á allan minn stuðning.
Hvet sem flesta til að skoða eftirfarandi síðu einkum þá sem vilja hjálpa fólki sem ekki getur lifað eðlilegu lífi eins og við hin: http://hallarut.blog.is/blog/hallarut/entry/594049/
![]() |
Segist ekki hunsa náttúruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.7.2008 kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góð reynsla mín af Prevenar
24.7.2008 | 09:02
![]() |
Bólusett við eyrna- og lungnabólgu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Náttúrvernd og Lyngdalsheiðarvegur
23.7.2008 | 21:15
Ég hef alla tíð verið mikill náttúru og umhverrfissinni, en um leið vil ég að framfarir eigi sér stað í samgöngumálum. Því hef ég ekki skilið umfjöllun Bergs og kollega hans um Lyngdalsheiðarveg, nú þegar verkfið hefur fengið faglega umfjöllun og farið tvisvar til umhverrfisráðherra til samþykktar. Mér finnst alveg ljóst að menn þekkja ekki til málsins þegar þeir hafna samþykktum vegaframkvæmdum á Lyngdalsheiðarvegi.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar beitti sér fyrir því að lagður yrði heilsársvegur milli Laugardals og Þingvallasveitar, og lagði áherslu á að vegurinn uppfyllti bestu umferðaröryggisstaðla, en núverandi vegur er einungis sumarvegur hefur hæstu slysatíðni á landinu. Vegagerðin vann mjög faglega í málinu, og tillögur Vegagerðarinnar fóru aftur og aftur til umræðu í sveitarstjórn. Þar voru gerðar athugasemdir og samþykktar breytingar. Margsinnis var auglýst svo almenningur fengi færi á að gera athugasemdir sínar. Hlustað var á allar athugasemdirnar vegstæðið ekki látið koma inn í Þingvallaþjóðgarð þótt sveitarstjórn vildi hafa veginn styttri og annað vegstæði hefði verið fyrsti kostur sveitarstjórnar.
Niðurstaða margra ára vinnu liggur nú fyrir tekið var tilliti til allra athugasemda og búið er að semja við verktaka. Ég gleðst yfir að Bergur í Landvernd og Pétur H. skyldu ekki ná að stöðva málið og að nú fara framkvæmdir að hefjast.
![]() |
Sakar samgönguráðherra um skilningsleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.7.2008 kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggsíða Jónínu Rós og fleira.
23.7.2008 | 16:06
Var að lesa blogg vinkonu minnar hennar Jónínu Rós og vil vekja athygli á skrifum hennar um uppeldismál. Ég er sjaldan að skrifa og enn sjaldnar að blogga þessa dagana og hafði ekki tekið eftir skrifum hennar fyrr. Hér er síðan hennar: http://joninaros.blog.is/blog/joninaros/entry/592596/ Er svo sannarlega sammála hverju orði og vil vekja athygli foreldra á skrifum hennar. Aðgreina þarf hegðun barna frá persónum þeirra og foreldrar verða að muna að setja skýr mörk milli persónu barnsins og hegðunar þess. Ef maður er ekki ánægður með einhverja hegðun þá þarf það að vera skýrt. Hvet alla til að lesa bloggið hennar Jónínu Rós þótt nokkrir dagar séu liðnir frá því að hún skrifaði það.
Það kemur ekki til af góðu að ég sit og rita á bloggið mitt. Var að meiða mig og er voða spæld yfir því. Reif liðband í ökla og verð því að hætta að stíga í fótinn í bili. Sársaukinn alltof mikill. Hef verið að þjálfa mig og hrossin mín undanfarið, kjarkurinn fínn og gaman að ríða góðum hrossum. Tók Gautrek og Hjálprek alveg að mér og þjálfunin komin vel af stað. Um helgina stóð til að við Óli færum vestur á Snæfellsnes, færðum Fjalari hest og síðan ætlaði ég að ríða fjörurnar með Snæfellingum. Nú er ég hrædd um að ég verði að sleppa þessu sennilega ófær um að ganga neitt. Allavega líður mér þannig í dag og Pétur læknir sagði að ég myndi eiga í þessu næstu vikurnar. Djö..... vesen. Ég sem var svo glöð yfir hvað mér gekk vel að þjálfa mig upp eftir slysið í vetur og hélt að nú kæmi ekkert fyrir meir. Fannar tók að sér hross fyrir mann í Laugardalnum og eitt þeirra hljóp mig niður, þrjóskt og kunni minna en ekki neitt. Þetta lítur því ekki eins út og til stóð með hrossin og ég slösuð eftir eitt þeirra. Var farin að hlakka til hestaferðar með Fannari og e.t.v. Kristni Bjarna og fleirum. Hrædd um að hún verði ekki farin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað skal segja?
21.7.2008 | 10:44
Það hefur verið svo gaman undanfarið að ég hef ekki gefið mér tíma til að setjast niður og skrifa. Að loknu Landsmóti hestamanna fórum við að huga að heyskap og nú eru 350 rúllur komnar í plast. Óli hirðir þær hratt enda ríkir sú kenning hér á Torfastöðum að verkun heysins verði miklu betri ef ekki er verið að hreyfa rúllurnar eftir að verkun í þeim hefur hafist. Því eru allar rúllur að komast í stæður.
Veðurblíðan hefur dregið gesti og fjölskyldumeðlimi að Torfastöðum undanfarnar vikur. Mikið er um að vera í reiðmennsku, en Jens fór þó fyrr en vænst var, enda er hann enn að syrgja nýlátinn bróður sinn. Hann kemur bara aftur næsta sumar. Fannar temur hross og Sólon líka og svo eru Sigtryggur og Davíð góðir hjálparmenn þeirra. Kristinn Bjarni er líka kominn á heimaslóðir og er að sinna börnum og hrossum. Heimilislífið er því fjörugt, þrjú ung börn tvennir foreldrar þeirra, við afi og amma og svo er amma Bía líka á staðnum. Hún var í sumarbústaðnum með Gunnari og Siggu ásamt Dídí um helgina og kom svo hingað í gærkvöld.
Í gær fengum við heimsókn fjölda manna sem æfðu sig á hestum og fengu vöfflur og rjóma. Eldur tók á móti væntanlegu tengdafólki sínu. Mjög skemmtilegt. Nú verður rigning í dag svo ég lít frekar á tölvuna til að blogga.
Sumarhúsalóðirnar eru komnar í sölu og búið er að gera samninga við nokkra eigendur sumarhúsa hér á Torfastöðum.
Vinir og fjölskylda | Breytt 27.7.2008 kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sumarhús í Þingvallaþjóðgarði
15.7.2008 | 23:48
Fyrir nokkrum árum sat ég ráðstefnu á vegum þjóðgarðsins á Þingvöllum þar sem fram kom að stefna Þingvallanefndar væri að sumarhús skyldu hverfa úr Þjóðgarðinum. Stefnan var að kaupa upp þau hús sem yrðu til sölu. Síðan þá hafa mörg sumarhús verið seld en Þingvallanefnd ekki keypt neitt þeirra skv. mínum heimildum. Skil ekki hversvegna Þingvallanefnd heldur ekki stefnu sinni til streytu kaupir upp sumarhús úr þjóðgarðinum þegar þau skipta um eigendur. Þingvallanefnd hlýtur að eiga forkaupsrétt og getur því haft í hendi sinni að stoppa það að ný hús séu byggð í stað þeirra sem eru orðin ónýt og þarf að endurnýja. Stefna Þingvallanefndar um að koma sumarhúsunum út úr þjóðgarðinum lá fyrir, þegar Þingvellir komust á heimsmynjaskrá UNESKO fyrir fáum árum síðan. Hefur Þingvallanefnd ekki áhyggjur af að detta út af heimsmynjaskránni ef stefnu nefndarinnar um sumarhúsin verður ekki fylgt eftir?
![]() |
Þyrluflug bannað í þjóðgarði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |