Það var gleðidagur í dag, skírn í Torfastaðakirkju og skírnarveisla á Torfstöðum. Ættingjar og vinir Fannars og Margrétar mættu og við áttum öll mjög gleðilegan dag saman. Sonardóttirin sem fékk nafnið Frigg, svaf alla athöfnina en bróðir hennar hann Stormur, lét á sér bera, nennti ekki að sitja kyrr labbaði upp að altarinu svo gekk hann út, kom svo inn aftur og blaðraði. Gerði bara það sem honum datt í hug og lét sér fátt um finnast um athöfnina.
Veðrið var bjart og fallegt í allan dag og yndislegt að fá að njóta góðra vina.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:47 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.