Tröppurnar á Torfastaðakirkju standast ekki karla sem saga og brjóta og rífa upp gangstéttar
18.5.2009 | 10:22
Við Torfastaðahjón vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið þegar kl. 9:30 upphófst mikill hávaði, her manna mættur að kirkjunni og beytti steinsögum og sleggjum á kirkjutröppurnar. Þeir rifu líka upp gömlu stéttina og sú nýja er einnig undir. Sennilega tíu ungir karlar sem tala sumir framandi mál eru hér fyrir utan á tveimur bílum vopnaðir allskonar tækjum og tólum. Nú brjóta þeir og bramla. Þetta eru greinilega öflugir karlar að sunnan komnir til að taka til í kirkjugarðinum á Torfastöðum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:25 | Facebook
Athugasemdir
Húrra .... ég " datt" um bloggið þitt þegar ég hætti mér inn á moggabloggið til að vita hvort ég finndi eitthvað annað en barlóm um fjárhag okkar íslendinga nú eða þá rifrildi um póltík. Innilega takk fyrir síðast, knúsaðu kallinn og krakkana þegar þú nærð til þeirra næst ... verðum á flakki um suðurland í sumar og komum við ... hlakka til.
., 18.5.2009 kl. 11:05
Sæl ert þetta ekki þú Halla mín? Gaman að fá þig í heimsókn hlakka til að sjá ykkur í sumar. Alltaf kaffi á könnunni þótt ég nenni aldrei að baka. Bið að heilsa fjölskyldunni.
Drífa Kristjánsdóttir, 18.5.2009 kl. 15:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.