Björt á afmæli í dag 2. mars.
2.3.2009 | 07:52
Ég óska Björt minni til hamingju með afmælið. Hún fæddist á Fæðingarheimilinu fyrir 26 árum síðan. Ég varð mjög undrandi að eignast stúlku hélt alltaf að ég væri með dreng undir belti, og svo var hún dökkhærð með mikið hár og heljar bolla, bara 51 cm að lengd en 17 merkur og auðvitað fannst okkur hún mjög falleg.
Við höfðum áhyggjur af að eldri bróðir hennar yrði afbrýðissamur enda búinn að njóta fjölskyldunnar einn með óskipta athygli allra. Þetta voru óþarfa áhyggjur drengurinn gerði engar athugasemdir við nýja systur sína en vildi velja annað nafn á hana þegar hún var skírð. 26 ár liðin og Björt hefur verið okkur til yndis og ánægju. Til hamingju elskan.
Gautrekur frá Torfastöðum og Drífa unnu Vetrarmót Loga í dag.
1.3.2009 | 20:37
Í dag kepptum við Gautrekur frá Torfastöðum, saman í fyrsta sinni, og við unnum. Ég ætlaði ekki að keppa en fékk hvatningu frá fjölskyldunni og fór því með Gautrek minn. Við höfum þjálfað okkur saman síðan í vetur. Hann þurfti að þyngjast og auka vöðvamassa og ég hef notið þess að þjálfa mig og hann eftir að ég náði mér eftir slysið í fyrra. Nú erum við bæði í góðu formi og unnum okkar flokk. Það var mjög skemmtilegt og alveg óvænt fyrir mig. Ég geri aldrei ráð fyrir að vinna í hestakeppnum. Finnst ég fyrst og fremst góð í að undirbúa hross og þjálfa þau upp, en svo geta aðrir keppt á hrossun
um og sýnt þau fyrir mig.
Viðar Ingólfsson hefur reyndar tekið að sér að þjálfa Gautrek næstu vikur og e.t.v. alveg fram á vor og gerir það af meiri fagmennsku en ég, og því verður spennandi að sjá hvaða árangri þeir munu ná.
Jón kokkur (K.B. Sigfússon) sendi mér þessar fínu myndir sem ég leyfi mér að setja hér á bloggið mitt. Hjartans þakkir fyrir myndirnar Jón.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Framboð Ingibjargar Sólrúnar fagnaðarefni.
28.2.2009 | 11:52
![]() |
Ingibjörg býður sig fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Annasöm vika, íbúafundur í Bláskógabyggð o.fl..o.fl..
28.2.2009 | 11:37
Vikan, sem nú er að enda var skemmtileg og annasöm. Í Sunnulækjarskóla var furðufatadagur á föstudaginn. Ég klæddi í pils með skjörti (eins og við kölluðum það í gamla daga) og skreytti mig með hárklút og stórum eyrnarlokkum og öllum hálsmenunum sem ég á. Börnunum þótti ég voða skrautleg og dáðust að mér. Þau voru líka sjálf mjög flott. Skemmtilegur dagur, allir syngjandi á sal þegar ég mætti og svo fór megnið af deginum í leiki og samveru.
Á þriðjudagskvöldið héldum við í T-listanum íbúafund í Aratungu. Ekki var eins vel mætt á hann eins og í fyrra, þrátt fyrir að sveitarstjórinn og oddvitinn heiðruðu okkur með nærveru sinni. En fundurinn var mjög skemmtilegur og lærdómsríkur.
Eldur er í Kína að vinna. Hann fór á laugardaginn var og er væntanlegur heim á morgun. Ég fékk póst frá honum og hann er mjög glaður í Kína, lærir mikið um virkjanir Kínverja og fær fullt af hugmyndum um breytingar og leiðir sem þeir geta farið til að nýta betur orkuna sem þeir hafa virkjað.
Tveir sveitungar létust í vikunni, vinir okkar Arnór og Þorlákur. Skálholtskórinn fékk óskir um söng þrátt fyrir að hann hefur formlega verið lagður niður og Hilmar Örn er beðinn um að spila. Enginn kór né organisti er í Skálholti. Synd að Skálhyltingar skyldu hafa flæmt Hilmar Örn frá sér.
En félagar í Skálholtskórnum hinum forna hittast reglulega og syngja undir stjórn Hilmars Arnar. Vorum í æfingabúðum um síðustu helgi á Nesjavöllum. Æðislega skemmtilegt og fínn söngur. Áætlanir eru uppi um að syngja í Berlín í júní n.k.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.3.2009 kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20. febrúar afmæli æskuvinkonu minnar
20.2.2009 | 05:56
Rarik tók rafmagnið af sveitinni í nótt en það er nýkomið á, núna klukkan 5 að morgni. Enn er heitavatnsdælan ekki farin að dæla hingað á Torfastaði og ég bíð eftir að rafmagnið verði sett á hana. Ég er alltaf óróleg vegna hitaveitunnar þegar rafmagnið er rofið, enda mikil vinna að ná lofti af öllu kerfinu og ná upp hitanum. Við segjum stundum hér heima að Reykvíkingar myndu segja eitthvað ef þeir misstu rafmagnið eins oft og við gerum hér í Uppsveitunum. Reyndar er Rarik stöðugt að bæta ástandið í rafmagnsmálum og við þökkum að sjálfsögðu fyrir það. Þessa dagana er verið að bæta við rafstreng inn í sveitina, enda er mikil rafnotkun hjá garðyrkjustöðvunum.
Í dag á æskuvinkona mín hún Sidda afmæli og ég óska henni innilega til hamingju. Inga vinkona okkar og fyrrum sambýliskona og samstarfsmaður á svo afmæli á morgun. Til hamingju með afmælið á morgun Inga mín.
Stormur okkar kom í stutta heimsókn í gær á meðan að mamma hans átti góða stund með systkynum sínum í afmælisferð þeirra á Geysi.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18. febrúar 2009. Ár liðið síðan ég slasaðist og byrjaði að blogga.
18.2.2009 | 19:15
Í dag er nákvæmlega ár síðan ég slasaði mig illa, féll á gaddfreðna jörð af hesti og braut a.m.k. 5 rifbein, heilt herðablað, viðbein og vísifingur. Gat mig ekki hrært hægra megin og brotni puttinn á vinstri hönd hafði það í för með sér að ég gat ekki einu sinni greitt mér.
Var í lengi í vandræðum með að hreyfa mig eftir slysið, enda tók langan tíma fyrir beinin að gróa, einkum herðablaðið. Ég finn reyndar enn fyrir því. En áföllum fylgja oft tækifæri. Ég varð að finna mér eitthvað að gera, annað en að temja hesta og datt þá í hug að reyna að blogga. Það var upphafið. Skrifaði fyrstu bloggfærsluna hér á Moggabloggið í mars 2008.
Ég var að kenna í dag, önnur vikan í vinnunni og nú er ég að komast miklu betur inn í málin í Sunnulækjarskóla. Gaman að kynnast skólastarfinu þar og að fá að taka þátt í því. Skólinn mjög fallegur, visarverur opnar kennt skv. stefnu um opinn skóla og einstaklingsmiðað nám.
Úr vinnunni fór ég á sameiginlegan fund sveitarstjórnar Bláskógabyggðar og Grímsness-og Grafningshrepps í Aratungu um samstarfsmál í skólahaldi. Ágætur fundur.
Lina barnsmóðir hans Loga kom í dag í heimsókn með dóttur sína og móður. Það var mjög gaman að fá þær í heimsókn litla daman mjög fín.
Luxemburg, Landsbanki og Kaupþing í okt. 2007.
8.2.2009 | 00:09
Nú man líka miklar veislur Landsbankans og Kaupþings, þótt stutt sé síðan aðeins sextán mánuðir. Landsbankinn í Lux fór með bestu viðskiptavini sína í flug til Milano flaug með fjöldann og bauð flug og hótel og veislu í eina þrjá daga í október 2007. Kaupþing í Lux hélt álíka veislu á sama tíma í Listasafni Reykjavíkur. Snobbið að drepa allt og alla og sóunin og vitleysan í mat og víni út yfir allan þjófabálk. Vínflaskan í lok veislunnar metin á kr. 80 þúsund og veitt eins og fólk gat í sig látið. Þannig var nú það.
![]() |
Er draumurinn á enda? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Konur redda klúðri karlanna
7.2.2009 | 10:36
Það er að vissu leyti dapurlegt að jafnrétti skuli nást við þær aðstæður að taka til eftir karlana. En konur hafa alltaf getað tekið til. Nú eru 78 dagar í kosningar og mikilvægt að konur verði ekki bara í tiltektinni heldur taki við stjórn landsins næstu árin. Tími feminismans er í dag, testósteónið er fallið.
Ég treysti engri konu betur en Ingibjörgu Sólrúnu til að leiða tíma breytinga. Hún er svo stór kona að hún afhenti annarri konu forsætisráðherraembættið. Guð gefi henni heilsu til að koma og hjálpa íslensku samfélagi í þeim breytingum sem framundan eru.
![]() |
Öld testósterónsins lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
T-listinn heldur íbúafund í Aratungu 24. febrúar n.k. kl. 20:00
6.2.2009 | 21:31
Ég leyfi mér hér með að kynna að íbúar Bláskógabyggðar eru boðnir á íbúafund sem T-listinn stendur fyrir þriðjudagskvöldið 24. febrúar n.k. í Aratungu. Fundurinn verður haldinn kl. 20:00.
T-listinn hefur alltaf viljað að sveitarstjórn haldi árlega fundi með íbúum, Bláskógabyggðar,(Biskupstungna, Laugardals og Þingvallasveitar). Þ-listinn hefur verið tregur í taumi og ekki viljað halda fundi með okkur. Í fyrra héldum við T-lista fólk mjög skemmtilegan fund á Laugarvatni og nú ætlum við að vera í Aratungu. Höfum sérstaklega boðið sveitarstjóranum og fulltrúum Þ-listans á fundinn og vonum að þeir taki boðinu. Fundurinn verður auglýstur í Bláskógafréttum og vonandi á heimasíðu Bláskógabyggðar.
Við vonum að fólk mæti og segi hug sinn um málefni samfélagsins.
Drífa, Jóhannes og Kjartan fulltrúar T-listans í sveitarstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Raunveruleg staða að koma í ljós
5.2.2009 | 13:04
Mer reiknast til að 1.800 milljarðar króna séu ekki til hjá Kaupþingi og þá virðast Íslendingar þurfa að standa skil á þessum milljörðum, eittþúsund og áttahundruð eru milljarðararnir.
Búnaðarbankinn síðar KB banki og svo Kaupþing, var seldur eða gefinn S hópnum á nokkra milljarða króna, held það hafi verið undir 10 milljörðum.
Stjórnvöld seldu bankann, bankamálaráðherra Valgerður Sverrisdóttir framsóknarkona sá um þann gjörning. Nú er komið að okkur að borga brúsann, þökk sé Framsókn og Sjálfstæðisflokki frjálshyggjunnar.
![]() |
Kaupþing skuldar 2432 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |