Morgunblaðið í vörn fyrir Seðlabankann.
21.12.2009 | 06:52
![]() |
Þrengri reglur um veðlán en í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Guðrúnargata hefur lengi verið til í Norðurmýrinni
18.12.2009 | 06:59
![]() |
Minning kvenna heiðruð með götunöfnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjánalegir Framsóknardrengir
11.10.2009 | 19:07
Það er frekar þreytandi að þurfa að fá yfir sig fréttir af því tagi sem hafa verið um litlu strákana sem fá fréttamenn til að ræða við sig um að ef þetta væri svona þá myndi hitt vera svona og að einhver ætti heldur að vinna á þennan hátt en hinn. Þetta er auðvitað bráðfyndið að litlir strákar, sem langar að láta á sér bera, skuli fá fréttamenn til að elta ólar við vitleysuna sem út úr þeim kemur.
Strákar mínir sendið bara sjálfir ykkar bréf, skrifið þeim sem geta svarað og þegar niðurstaða liggur fyrir þá sýnið þið fjármála-og forsætisráðherra bréfið og við íbúar landsins fáum fréttir. Ekki einhverjar getgátur og vitleysu. Og fréttamenn hættið þessum ekkifréttum.....
![]() |
Kallaði á neikvæð viðbrögð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Stormur og Frigg og foreldrar þeirra í heimsókn hjá ömmu og afa.
11.10.2009 | 17:27
Það var gaman hjá ömmu og afa á Torfastöðum síðasta sólarhring. Fengum tvö af þremur barnabörnum í heimsókn, borðuðum gott Torfastaðakjöt og fiskibollur ömmu í hádegismat í dag, sunnudag. Frigg ræðir mikið við okkur á sinn hátt, þótt einungs 3ja mánaða, hlær og svarar svipbrigðum og hljóðum. Stormur auðvitað alltaf flottur enda elstur þótt han
n sé ekki orðinn 2ja ára. Nú stendur til að halda afmælisboð tveimur dögum eftir afmælið hans sem verður 29. október n.k.
KR-ingar munu mæta Stjörnunni í kvöld í Vesturbænum í Meistara meirstaranna leik og styrktarleik fyrir Neistann styrktarfélag hjartveikra barna. Ég óska þess auðvitað að KR-ingar verði Meistarar meistaranna að loknum leik. Fannar fór vel stemmdur og einbeittur. Vonandi kemur hann liðinu vel eftir veru fjölskyldunnar hér á Torfastöðum
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslensk fyrirtæki strand í fjármálakreppu
5.10.2009 | 22:15
![]() |
Geysir Green selur hlut í kanadísku félagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fall er fararheill KR-ingar
30.9.2009 | 21:18
Ég vonaði auðvitað að KR-ingar ynnu Njarðvíkinga en nú segi ég bara að fall er fararheill. KR ingar verða sigurvegar seinna í vetur þegar meira liggur við.
![]() |
Grindavík og Njarðvík í úrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enn eru barnabörnin skírð hér á Torfastöðum. Þvílík lán að fá að njóta yndirlegra og heilbrigðra barna. Yndislegur skírnardagur og ættingjarnir mættu vel. Nutum samveru margra skyldmenna og vina í dag. Eldur og Guðrún voru svo til viðstödd en við vorum nettengd í kirkjunni og þau gátu fyglst með athöfninni þótt þau séu í Kína. Það var mjög gaman og allir tóku þátt í því að þau voru með okkur. Veifuðu úr kirkjunni þegar ég lyfti upp netmyndavélinni. Þvílík skemmtun að geta verið með alla fjölskylduna með í skírn, jafnvel þótt þeir séu staðsettir í K
ína.
Sr. Egill var mjög skemmtilegur, lét börnin koma að skírnarfontinum og tjá sig í söng og leik í lok athafnar. Svo nutum við æðislegra veitinga sem föðurættingjar Garps báru inní hús. Flottar kökur og meðlæti gert af Unni, föðurömmu Garps, Helgu langömmu hans, og föðursystrum Birgis. Sigrún mágkona kom líka með flottar brauðtertur. Það svignuðu boriðn af veitingum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spennandi helgi framundan
18.9.2009 | 11:50
Ég, Drífa er að reyna að koma íbúðarhúsinu hér á Torfatöðum í sæmilegt horf enda framundan mikil veisla Sonur Bjartar og Birgis verður skírður á sunnudaginn. Margir hafa svarað boði um að koma svo nú verður að rýma til í herbergjum sem ég nenni aldrei að taka til í. Svo þarf að fá lánaða diska og e.t.v. glös. Óli telur rétt að fá lánað 10 - 20 stóla.´
Svo er verið að ná í vefmyndavél svo við getum leyft Guðrúnu og Eldi sem eru í Kína að fylgjast með athöfninni. Mér finnst þetta mjög spennadi og gef mér ekki meiri tíma í bili til að blogga. Verð að hefjast handa.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tungnaréttir í dag
12.9.2009 | 00:05
Elsti sonurinn Fannar og fjölskylda hans mættu á Torfastaði í gær og við fórum öll í Tungnaréttir í morgun. Vorum komin þangað rétt fyrir klukkan tíu í morgun en þá var síðasti fjárhópurinn kominn í almenninginn. Menn luku við að draga í dilkana, um hálftíma seinna og þá upphófst hefðbundinn söngur. Þetta var ný og skemmtileg upplifun fyrir Storm en Frigg svaf bara í faðmi móður sinnar.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldur og Guðrún eru nú lögð af stað til Kína
9.9.2009 | 17:49
Í dag héldu Guðrún og Eldur af stað í ferð sína til Kína. Þau flugu til London kl. 16:00 í dag og á morgun eiga þau flug til Shanghai. Fjölskyldan kom saman á sunnudag til að kveðja Eld og Guðrúnu. Það var mjög ánægjuleg samvera og hér fylgja tvær myndir frá henni. Barnabörnin þrjú Frigg, óskýrður og Stormur í faðmi frænda síns.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)