http://www.torfastadir.is heimasíđan ađ komast í virkni

Nú eru liđin fimm ár síđan ég reyndi ađ koma mér upp heimasíđu.  Mér tókst ekki ađ virkja hana enda var ég međ svo lélega tengingu eitthvađ sem kallađ var ISDN og mér tókst ekki ađ koma neinu inná síđuna.  Gafst upp og lét allt danka. 

E n nú hef ég veriđ ađ gera nýja tilraun ţarf ađ koma hestunum okkar á framfćri enda ţurfum viđ ađ selja fleiri hross svo eitthvert vit sé í búrekstrinum hér.  Vefsíđuhönnuđurinn tjáir mér ađ ekkert sé hćgt ađ betrumbćta eđa breyta síđunni sem sett var upp fyrir fimm árum, ef ég vilji breytingar ţá verđi ađ setja upp nýja síđu.   Ég er svo hrifin af ţví ađ hafa haldiđ lénunum http://www.torfastadir.is    og http://www.torfastadir.com   ađ nú ćtla ég ađ gera lokatilraun og sjá hvort ég kemst í tengsl viđ fólk sem vill kaupa af okkur.  Spennandi tímar og gott ađ vinna ţetta í haustrigningunum.


Hilmar Örn Agnarsson, kórstjóri, kveđjutónleikar

Félagar úr Skálholtskór og ásamt fleiri kórum Hilmars Arnar, hafa ákveđiđ ađ kveđja međ viđhöfn kórstjórann sinn en hann er ađ fara frá Skálholti .  Leyfi mér ađ setja hér fréttatilkynningu frá kórfélögum.

Kveđjutónleikar í Skálholtskirkju, 

Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri kvaddur.

Laugardaginn 27. september kl 17.30 verđur haldin mikil tónlistarveisla í Skálholtskirkju.  Hilmar Örn hefur nú látiđ af störfum sem organisti og kórstjóri í Skálholti, eftir 17 ára farsćlt starf og nú er komiđ ađ eftirminnilegri kveđjustund.   

Af ţessu tilefni koma fram Barna-og Kammerkór Bisk., Skálholtskór, Kammerkór Suđurlands og fjöldi ţekkts tónlistarfólks undir stjórn Hilmars Arnar, sem tekiđ hefur ţátt í tónleikum međ kórum Hilmars undanfarin 17 ár. 

Fyrsta skal nefna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, sem sungiđ hefur einsöng árlega međ kórunum innanlands sem utan.  Einnig söngvarana Hrólf Sćmundsson, Margréti Stefánsdóttur og Maríönnu Másdóttur, sálmabandiđ Lux Terrae, Hjörleif Valsson konsertmeistara og Jóhann I. Stefánsson trompetleikara.  Einnig munu hinir ágćtu organistar Haukur Guđlaugsson, Steingrímur Ţórhallsson og Guđjón Halldór Óskarsson leika á orgel kirkjunnar fyrir tónleikanna, međan gestir ganga til sćtis. 

Flytjendur allir munu leggja sitt af mörkum til ađ gleđja ţá sem koma ađ hlusta, til ađ gleđja hvert annađ og ekki síst söngstjórann, sinn góđan vin og baráttumann fyrir sönguppeldi og söngmenningu í sveitum landsins.  Megi honum farnast vel á nýjum starfsvettvangi. 

Ađstandendur tónleikanna óska eftir  ađ ţeir sem tök hafa á, láti upphćđ sem svarar ađgangseyri ađ tónleikunum,  ( t.d . kr 2000,- ) í söfnunarkassa í andyri og mun ágóđi tónleikanna renna óskiptur í námssjóđ fyrir Hilmar Örn.  Ţađ yrđi örlítill ţakklćtisvottur fyrir ţađ sem hann hefur lagt af mörkum fyrir samfélagiđ hér austan fjalls undanfarna áratugi. Hlökkum til ađ sjá sem flesta!

Félagar í kórum Hilmars

 


Til hamingju Eggert Haukdal

Ég vil óska Eggerti Haukdal til hamingju međ sýknudóminn og samgleđst honum ađ Ragnari skuli hafa tekist ađ fá dóminn endurupptekinn í ţriđju tilraun sinni.  Eggert er ţrautseigur mađur og ţađ er Ragnar líka. Ég hef alltaf dáđst af Ragnari Ađalsteinssyni lögfrćđingi sem berst fyrir réttlćti og lćtur ekki deigan síga ţrátt fyrir synjun um endurupptöku a.m.k. tvisvar sinnum.  Dómar verđa ađ byggja á réttlćti, sönnunargögnum og heiđarleika.

Eggert var rćgđur og beittur andlegu ofbeldi međ sögum og ćtluđum sökum og ég hafđi mikla samúđ međ honum ţegar hann, á sínum tíma, var ađ berjast viđ öfundarmenn sína og andstćđinga.  Hann fékk hvergi uppreisn ćru og fréttamennskan var hreint andstyggileg ţegar meint sök hans var til umfjöllunar í fjölmiđlum. 

Svo varđ ég líka vitni af ţví ađ samherji hans í Sjálfstćđisflokknum niđurlćgđi hann á fundum, međ hegđun og látbragđi sem var ekki mönnum sćmandi.  Ţađ fannst mér afar skammarlegt og ţeim sem ţađ gerđi ekki til sóma.  Ég nefni engin nöfn. 


mbl.is Eggert: Ánćgđur og ţakklátur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Konur gefi enn og aftur framlag sitt.

Alltaf er ćtlast til ţess ađ framlag kvenna eigi ekki ađ kosta neitt, ţćr mega ekki hagnast á framlagi sínu til annarra fjölskyldna.  Ţetta eru úrelt sjónarmiđ og lítt sćmandi.  Konur eiga ađ fá mikiđ fyrir ađ lána líkama til ađ ganga međ börn fyrir ađra.  Tilvitnun í frétt:

"Međal ţeirra gagnrýnisradda sem heyrst hafa í umrćđunni um lögleiđingu stađgöngumćđra eru ađ verđi greitt fyrir međgöngu stađgöngumóđurinnar bjóđi ţađ óneitanlega upp á ađ efnaminni konur gerist stađgöngumćđur á viđskiptalegum grunni.

„Ţetta má ekki verđa atvinnuvegur,“ segir Matthías og telur heppilegra ađ stađgöngumóđir sé einhver sem sé nákomin hinum verđandi foreldrum. „Hins vegar er eđlilegt ađ stađgöngumóđur sé greitt fyrir vinnutapiđ og ţann kostnađ sem hlýst af ţví ađ vera stađgöngumóđir, ţví ţađ er auđvitađ mikil fyrirhöfn og viss áhćtta ađ ganga međ barn,“ segir Matthías og bendir á ađ einnig ţyrfti ađ skilgreina í lögum hver eigi rétt á fćđingarorlofi sé barn getiđ međ ađstođ stađgöngumóđur."

Greiđum ţví konum há laun fyrir ađ ganga međ börn annarra og og ef einhverjar efnaminni konur geta hagnast á ţví ţá er ţađ bara allt í lagi. 


mbl.is Stađgöngumćđrun „má ekki verđa atvinnuvegur“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Tungnaréttir

Stormur í réttunumÍ gćrmorgun voru Tungnaréttir.  Ţá komu Margrét og foreldrar hennar međ Storm á Torfastađi, til okkar Óla og viđ fórum öll í réttirnar.  Fyrstu réttirnar hans Storms, sem nú er orđinn tíu-og hálfs mánađa gamall.  

Fjárréttir eru haldnar í annađ sinn eftir riđuniđurskurđinn og fénu fjölgar hér í Tungunum.   Sérkennilegt var ađ sjá ađ engin kind var í sumum dilkum sem áđur var í fjöldi fjár.  Féđ inn međ Hlíđum fer nú á Kjöl.  Austurhlíđaféđ er margt og ţađ var myndarlegur hópur sem var rekinn heim úr réttunum.  Skemmtileg breyting frá ţví sem áđur var, ţegar fé úr Tungunum ţurfti ađ vera í tveimur ađskildum afréttarfólfum.  Nú er ţađ óţarfi enda allt féđ sem fer á fjalliđ, nýtt í sveitinni keypt frá riđulausum hólfum.

Ég dáđist ađ öllum sem komu ríđandi í réttirnar, ţađ rigndi heil ósköp ţađ hafđi engin áhrif á reiđmennina, ţeir héldu sínu striki og venjum, koma ríđandi í réttirnar.

Skálholtskórinn hélt ekki réttarballiđ ţetta áriđ, enda er Hilmar Örn ađ fara frá Skálholti og Skálholtskórinn, hefur ţví formlega lagt sig niđur. Fjáröflun var ţví ekki nauđsynleg.


11. september 2008

Í dag á hann pabbi, Kristján Sigurđsson afmćli, er orđinn 82ja ára.  Til hamingju pabbi minn.  Hann er ern og frískur ţótt aldurinn sé farinn ađ segja til sín og vinnur hörđum höndum ađ ýmsum verkefnum.  Mér finnst mest spennandi ađ hann er hefur veriđ ađ skrifa um međferđarstarf sem unniđ hefur veriđ međ ungmenni á Íslandi en hann var mikill frumkvöđull í međferđarmálum unglinga. 

Pabba hefur fundist margt vitlaust í umrćđunni um Breiđavík en ekki tjáđ sig mikiđ um ţađ.  Hans upphaf í međferđarmálum var ađ hann var fenginn til ađ stýra Breiđavík og hóf störf ţar 1955 en fór ţađan ári síđar.  Vildi ekki ala börnin sín (mig og Fjalar) upp á einangruđum og afskekktum stađ, reyndar tók mamma alveg fyrir ađ vera áfram fyrir vestan.  Síđar tók hann ađ sér unglingamál hjá lögreglunni og hjá félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. 

Áriđ 1972 var hann gerđur forstöđumađur Unglingaheimilis ríkisins og ţar lagđi hann grunn ađ miklu og góđu starfi í međferđarmálum ungmenna.  Hann pabbi hefur frá mörgu ađ segja og nú hefur hann ţađ verkefni ađ koma ţví á prent. Vonandi gengur ţađ vel.

11. september afmćli pabba og sjö ár síđan ađ árás á Tvíburaturnana í New York var gerđ.  Ég man vel hvar ég var 11. september 2001.  Ég fékk fréttirnar í leitum á Kili.  Hafđi ţá veriđ í 5 daga á fjöllum án frétta en fjallmenn fengu fréttirnar af árásinni ţegar viđ komum í Árbúđir.  Guđný og Camilla stóđu á öndinni, sögđu fréttirnar um leiđ og komiđ var í kofa.  Mér varđ strax hugsađ til Fannars og Margrétar sem voru í USA í námi, langađi ađ ná í ţau en vildi ekki hringja ţótt ég vćri međ NTM símann minn ţví ég vissi ađ erfitt vćri ađ ná út og ađ allir hlytu ađ vera ađ hringja út til ćttingja sinna.  Hringdi bara til Elds og Bjartar ađ athuga hvort ţau vissu eitthvađ meir en ég.  Já ég man ţennan dag eins og gerst hefđi í gćr, eins og ég býst viđ ađ allir geri, muni vel hvar ţeir voru ţegar ţeir heyrđu af árásunum.


Körfuboltalandsliđ Íslendinga, spennandi upphaf

Ţađ var einstaklega gaman ađ horfa á leikinn á móti Dönum. Eibeittir leikmenn, hrađinn góđur og vörnin líka.  Gaman ađ sjá hvađ liđiđ nćr vel saman og leikgleđin er mikil.  Ţađ er svo ánćgjulegt ađ horfa á leiki ţegar menn spila af gleđi og vinna vel saman, styđja hvorn annan og hvetja.  Húrra fyrir karlalandsliđinu í Körfu.
mbl.is Íslendingar skelltu Dönum í Höllinni 77:71
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Breiđavíkurbörn nútímans.

Er mjög hugsi yfir stöđu barna og ungmenna í dag.  Sé ekki ađ Barnaverndarstofa hafi, undanfarin ár, veriđ ađ veita ţá međferđarţjónustu sem ţörf er á.   Börnum er fórnađ ef ţau eru í vanda og fjölskyldur fá ekki ađstođ ţrátt fyrir ađ barnaverndarlög eigi ađ verja börnin til 18 ára aldurs.

Nú fá Breiđuvíkurdrengir mikla samúđ.  Ţađ er vel, en hvernig mun sagan dćma Barnaverndarstofu?  Félagsmálayfirvöld sveitarfélaga ţegja ţunnu hljóđi.  Skil ekki hversvegna sveitarfélögin gera ekki kröfu um meiri og betri ţjónustu.  Samningur ríkis og sveitarfélaga kveđur á um ađ Barnaverndarstofa eigi ađ veita međferđarţjónustu fyrir börn og ungmenni.  BVS hefur gert sveitarfélögunum mjög erfitt fyrir ţegar ţau hafa óskađ eftir ţjónustu fyrir ungmenni og nú notar Barnaverndarstofa umfjöllun um Breiđavík sér til afsökunar og segir ađ sú umfjöllun hafi minnkađ eftirspurn eftir međferđarvistun fyrir ungmenni. 

Ég fullyrđi ađ ţetta er bull, Barnaverndarstofa hefur leynt og ljóst lagt stein í götu međferđarstađa fyrir ungmenni.  Skjöldólfsstađir, Međferđarheimiliđ Torfastöđum og Hvítárbakki hafa hćtt ţjónustu undanfarin ár.  Međ ţví voru lögđ niđur 18 međferđarpláss hjá Barnaverndarstofu og ekkert komiđ í stađinn.  Á sama tíma hefur Barnaverndarstofa gert sveitarfélögunum mjög erfitt fyrir ţegar ţau vantar ţjónustu fyrir ungmenni í vanda.  Ţađ hefur Barnaverndarstofa gert međ auknum kröfum á velferđarţjónustu sveitarfélaga ţannig ađ umsóknarferliđ eftir ţjónustu var gert stöđugt erfiđara og er orđiđ svo erfitt ađ flest sveitarfélög eru hćtt ađ óska eftir međferđarvistunum hjá Barnaverndarstofu. 

Nokkrum árgöngum barna, sem hafa átt í erfiđleikum hefur ekki veriđ sinnt.  Er ekki veriđ ađ endurtaka söguna um ljóta međferđ á börnum ţegar ţeim er ekki sinnt? Verđa Breiđavíkurbörn framtíđarinnar e.t.v. börnin sem fengu ekki ţjónustu Barnaverndarstofu? 


Heimasíđa fyrir Torfastađi

Ég hef lengi átt léniđ torfastadir.is og torfastadir.com en ekki getađ nýtt mér lénin.  Fékk sérfrćđing til ađ gera heimasíđu fyrir mig fyrir nokkrum árum, en ţekking mín á heimasíđu var engin svo ég fékk ekki síđu sem hentađi okkur.  Nú er ég ađ reyna ađ lćra sjálf svo ég hafi smá kunnáttu og geti skýrt hvernig ég vil ađ heimasíđan sé. 

Ég fór ađ blogga í vetur til ađ sjá hvort ţađ fleytti mér eitthvađ áfram í heimasíđugerđinni, enda fannst mér ég hafa tíma ţar sem ég hafđi slasađ mig og gat ekkert gert.  Ţađ var ţví tilvaliđ ađ nota tímann og öđlast reynslu í blogginu. 

Nú ćtla ég ađ reyna ađ lćra meira og er í námi hjá Tölvu-og verkfrćđistofunni, ađ reyna ađ tileinka mér heimasíđugerđ.  Veit ekki hvernig ţetta fer en byrjunin lofar góđu.  Mér finnst ćđislegt ađ gefa mér loks tíma til ađ lćra eitthvađ í tölvuvinnslu.  Hóf nám í tölvu reyndar í fyrra ţegar ég lćrđi ađ fćra bókhaldiđ á tölvuna.  Ţađ var algert ćđi og synd ađ hafa ekki getađ fyrr tölvufćrt bókhaldiđ.  Ţađ hefđi sparađ mér peninga og vinnu ţegar allt var á fullu hjá okkur í umönnun barna og skólahaldi fyrir ţau. 

En nú ţegar hćgt hefur á verkefnum get ég vonandi unniđ meir í heimasíđugerđinni.  Hef mikinn áhuga á ađ koma okkur upp ţolanlegri kynningu á hrossarćktinni.  Svo langar mig alltaf ađ skrifa um 32ja ára reynslu mína af međferđarvinnu međ ungt fólk og fjölskyldur ţeirra. 


Lyngdalsheiđarvegur, loksins hefjast framkvćmdir

Áriđ 2002 sameinuđust sveitarfélögin Ţingvellir, Laugardalur og Biskupstungur og urđu ađ Bláskógabyggđ.  Sveitarstjórnin öll einhenti sér í ađ vinna ađ ţví fá nýjan veg milli Ţingvalla og Laugarvatns, heilsársveg.  Vonir voru bundnar viđ ađ vinnan myndi ganga hratt fyrir sig og Vegagerđin stóđ sig mjög vel, hannađi margar veglínur og gerđi umhverfismat.  Vćntingar voru um ađ veginum yrđi lokiđ 2007 en nú loksins í september 2008 eru framkvćmdir ađ hefjast.  Viđ hlökkum öll til ađ fá veginn og gleđjumst yfir áćtlunum verktaka um ađ flýta framkvćmdum. 

Ekki var hćgt ađ leyfa skólabörnum úr Ţingvallasveit ađ sćkja skóla sinn á Laugarvatn í vetur enda ekki vitađ hvernig vegaframkvćmdir yrđu og hvort hćgt yrđi ađ aka veginn í vetur.  Nćsta vetur verđur vonandi hćgt ađ aka nemendum á Laugarvatn og stytta ţannig til muna akstur ţeirra í skólann sinn.  Húrra. 

Ég vil leyfa mér ađ benda á ađ tillaga um nýtt nafn á veginum, Lyngdalsheiđarvegur, kom frá sveitarstjórn Bláskógabyggđar og er ţví alfariđ á ábyrgđ heimamanna.  Vegagerđin tók nafngiftinni vel.


mbl.is Byrjađ á umdeildum vegi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband