Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
Skálholt, tónleikar í kvöld.
30.5.2008 | 10:43
Skálholtskórinn hefur æft tvisvar undir stjórn Steingríms en hann ætlar að koma með kórinn sinn og halda tónleika í Skálholti kl. 18:00 í dag. Vildi fá okkur til að syngja með. Það hefur verið mjög ánægjulegt að æfa prógrammið frá Ítalíuferðinni í fyrra tilhlökkun að hitta kórinn hans Steina. Við höfum verið að rifja upp ýmsa atburði, Pompei ferð og söng eftir langa göngu í miklum hita. Ég hugsa oft til Napolí og ruslsins sem var um allar götur.
Hvet fólk til að koma á hljómleikana, gott að njóta kyrrðarinnar við góðan söng í Skálholti í kvöld, eftir lætin í gær, þ.e. jarðskjálftann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jarðskjálftinn mikill hér á Torfastöðum
29.5.2008 | 15:59
Afar öflugur jarðskjálfti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frábært veður á Torfastöðum, í dag og næstu daga.
29.5.2008 | 14:38
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vorverkin gleðja.
28.5.2008 | 21:56
Vorverkin hafa tekið yfir undanfarna daga og þegar ég lauk því að hræra upp skítinn í haughúsinu, dreif ég í að ljúka bókhaldinu og skila því til endurskoðandans. Alltaf léttir þegar það er af. Nú hlakka ég til að halda áfram með vorverkin. Hryssurnar eru að kasta þessa dagana, fjögur folöld komin og á föstudaginn kemur haugsugan og dreifir skítnum.
Kynbótasýningarnar halda áfram, Hjálprekur, 5 vetra stóðhestur frá okkur fer í dóm á föstudaginn kemur fyrir norðan, Tryggvi sýnir hann. Svo mætir Gautrekur í dóm í Hafnarfirðinum. Hrist fer e.t.v. líka í dóm, við sjáum til.
Kristinn Bjarni og Berglind eignuðust dreng fyrir fjórum dögum og Gunnur Líf telpu þann 20. júní. Allir heilbrigðir og hressir. Óska þeim öllum innilega til hamingju. Gunnur Líf bauð í skírn á sunnudaginn kemur og auðvitað mætum við í Garðabæinn.
Svo eru það útskriftaveislur hjá Eldi og Björt. Eldur ætlar að halda sína í bænum þann 14. júní, útskriftardaginn, en Björt þann 28. júní hér á Torfastöðum. Nú þarf að fara að hugsa fyrir því. Gaman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Grænmeti íslenskt, erlent?
23.5.2008 | 07:48
Ég hef alltaf verið mjög pirruð á því að innflytjendur reyna að plata neytendur þegar þeir kaupa grænmeti. Reyna að gera grænmetið íslenskt þótt það sé erlent. Fyrirtækið Hollt og gott hefur verið í fararbroddi í þeim efnum, pakkar vörum sínum þannig að flestir sem ég þekki halda að þeir séu að kaupa íslenskt þegar þeir kaupa voru pakkaða af Hollu og góðu.
Undanfarið hafa íslenskir framleiðendur gert mikla bragarbót í sínum merkingum og mér finnst verða að gera öllum skylt að merkja hvaðan varan kemur. Húrra fyrir Árna Johnsen að vekja athygli á málinu og nú þarf skýrar reglugerðir fyrir innflutningsaðili svo þeir hætti að plata fólk til að kaupa erlent grænmeti í þeirri trú að það sé íslenskt. Neytendur varið ykkur.
Merkingar grænmetis skoðaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lyngdalsheiðarvegur, nútíma vegagerð.
22.5.2008 | 10:48
Vegagerðin opnaði tilboð í framkvæmdir á Lyngdalsheiðarvegi fyrir tveimur dögum. Húrra. Nú kemst Þingvallasveit loks í vegasamband við restina af sveitarfélaginu allt árið. Sex ár síðan að Þingvallasveit, Laugardalur og Biskupstungur sameinuðust. Loksins verður fært allt árið milli staða í sveitarfélaginu Bláskógabyggð.
Mótmæli Péturs vegna vegarins hafa verið hávær en ekki að sama skapi almenn. Pétur gólar og galar og Landvernd tekur undir, en aðeins 1300 manns kusu í heimskulegri viðhorfskönnun Landverndar og Morgunblaðsins. Áróðursstríðið tapað. Nútímasamgöngur verða að raunveruleika í nágrenni Reykjavíkur, ekki lengur 100 ára moldargötur sem við Uppsveitarfólk eigum að láta okkur nægja til að komast á milli staða, eins og Pétur og Landvernd gera kröfur um í áróðri sínum. Nútíminn heldur innreið sína í samgöngum milli Laugarvatns og Þingvalla.
Framkvæmdir við nýjan Gjábakkaveg hefjast innan tíðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.7.2008 kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Foreldralaus börn
21.5.2008 | 19:32
Grein Ingibjargar Benediktsdóttur í Morgunblaðinu í dag er orð í tíma töluð. Öll mín samúð er með þeim sem þjást vegna fjölskylduvanda og fá ekki aðstoð. Tíminn er stuttur þegar ungmenni eru að valda sér tjóni. Nauðsynlegt að bregðast skjótt við og snúa erfiðleikunum í sigra.
Var að hlusta á viðtal Guðrúnar Frímannsdóttur, fréttamanns Ruv .og fyrrverandi framkvæmdastjóra Barnaverndar Reykjavíkur við Halldóru Gunnarsdóttur núvernadi framkvæmdastjóra Barnav. Rvk. Hroðalegt hvað sum börn þurfa að þola þegar foreldrar þjást af eiturlyfjafíkn, geðveiki eða öðru sem gerir þau illfær um að vera foreldrar barna sinna. Börn velja sér ekki foreldra en barnaverndarlögin eru mjög foreldravæn. Svo birtist frétt á mbl.is að Bragi á Barnaverndarstofu ætli að rannsaka vinnubrögð Barnaverndar Reykjavíkur.
Ef ég mætti ráða þá væru úrræði stöðugt fyrir hendi til að aðstoða þá sem hafa áhyggjur af börnum sínum og eiga í erfiðleikum af ýmsum toga. Barnaverndarstofa hefur fækkað úrræðum undanfarið sem voru til aðstoðar ungmennum og fjölskyldum þeirra.
Barnaverndarstofa rannsakar málið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.7.2008 kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brák IS2002288508 vann 2. sætið
17.5.2008 | 08:47
Í gær var gaman. Brák frá Torfastöðum hækkaði fyrir hæfileika í yfirlitinu og hefur fengið í aðaleinkunn 8,19. Hún hlaut 8,19 fyrir byggingu og 8,19 fyrir hæfileika. Ég þakka Sigurði Vigni Matthiasyni kærlega fyrir hans þátt í árangrinum. Hann sýndi hryssuna og gerði okkur stóran greiða enda fór hún til hans óvænt seinnipart vetrar. Ég tek ofan fyrir Sigurði, dáist að eljusemi hans og dugnaði og heiðarleika.
Það var gaman í Víðidalnum í gær, margir sigurvegarar í mismunandi flokkum og margir ánægðir eigendur. Aðstaðan þar frábær.
Fjalar bróðir á afmæli í dag, óska honum til hamingju. Gunnar mágur og Sigga koma heim frá Englandi í dag en hann var í námsleyfi þar. Garðbæingar verða glaðir að fá bæjarstjórahjónin heim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blíðviðri á Torfastöðum, Biskupstungun
15.5.2008 | 09:53
Vorið er komið til okkar á Torfastöðum blíðviðri, hiti, sannkallað gróðrarveður.
Sumarhúseigendur njóta staðarins og hrossin kætast. Fyrsta folaldið komið í heiminn og fleiri á leiðinni. Setti inn vetrarmynd svo við gleymum ekki alveg síðasta vetri, en hann var mér frekar erfiður. Nú eru erfiðleikarnir að baki og bjart framundan.
Vorkenni þeim sem eiga erfitt og hugsa mikið til hörmunganna í Kína og Burma. Blessað fólkið.
Allt að 17 stiga hiti í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.5.2008 kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brák frá Torfastöðum í kynbótadómi
14.5.2008 | 20:30
Fór í bæinn og horfði á hryssuna okkar fara í kynbótadóm. Hún hækkaði í byggingareinkunn fékk 8,19 og skeiðið hækkaði líka um heilan. Nú er hún með aðaleinkunn 8,14 þarf bara 0,01 stig í viðbót til að komast á Landsmótið. Yfirlitsýningin eftir, verður á föstudaginn og þá hækkar hún vonanadi og vinnur sér rétt inn á Landsmótið. Veðrið var yndislegt og gaman að horfa á flott hross í brautinni. Er að reyna að koma mynd af henni með þessum pistli en veit ekki hvort mér hefur tekist það. Sé til þegar þetta hefur verið vistað
Bloggar | Breytt 17.5.2008 kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)