Annasöm vika, íbúafundur í Bláskógabyggð o.fl..o.fl..

Furðufatadagur í Sunnulækjarskóla 2009 (2)Vikan, sem nú er að enda var skemmtileg og annasöm.  Í Sunnulækjarskóla var furðufatadagur á föstudaginn.  Ég klæddi í pils með skjörti (eins og við kölluðum það í gamla daga) og skreytti mig með hárklút og stórum eyrnarlokkum og öllum hálsmenunum sem ég á.  Börnunum þótti ég voða skrautleg og dáðust að mér.  Þau voru líka sjálf mjög flott. Skemmtilegur dagur, allir syngjandi á sal þegar ég mætti og svo fór megnið af deginum í leiki og samveru. 

Á þriðjudagskvöldið héldum við í T-listanum íbúafund í Aratungu.  Ekki var eins vel mætt á hann eins og í fyrra, þrátt fyrir að sveitarstjórinn og oddvitinn heiðruðu okkur með nærveru sinni.  En fundurinn var mjög skemmtilegur og lærdómsríkur.

Eldur er í Kína að vinna.  Hann fór á laugardaginn var og er væntanlegur heim á morgun.  Ég fékk póst frá honum og hann er mjög glaður í Kína, lærir mikið um virkjanir Kínverja og fær fullt af hugmyndum um breytingar og leiðir sem þeir geta farið til að nýta betur orkuna sem þeir hafa virkjað.    Tungnaraddir í æfingabúðum, kvöldvaka

Tveir sveitungar létust í vikunni, vinir okkar Arnór og Þorlákur.  Skálholtskórinn fékk óskir um söng þrátt fyrir að hann hefur formlega verið lagður niður og Hilmar Örn er beðinn um að spila.  Enginn kór né organisti er í Skálholti.  Synd að Skálhyltingar skyldu hafa flæmt Hilmar Örn frá sér.

En félagar í Skálholtskórnum hinum forna hittast reglulega og syngja undir stjórn Hilmars Arnar.  Vorum í æfingabúðum um síðustu helgi á Nesjavöllum.  Æðislega skemmtilegt og fínn söngur.  Áætlanir eru uppi um að syngja í Berlín í júní n.k.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband