Stormur orðinn ársgamall.
9.11.2008 | 19:06
Hann Stormur okkar er orðinn eins árs, átti afmæli þann 29. okt. og í dag var haldið uppá afmælið. Á myndinni til vinstri hefur hann nýlokið við að blása á eina kertið sitt, enda aðeins ársgamall. Á myndinni til hægri er hann að taka upp pakka með aðstoð frá frænku sinni Írisi Lilju.
Foreldrar hans fengu Torfastaðina lánaða til að taka á móti gestum sínum en íbúðin þeirra á Holtsgötunni er ekki hæf til gestamóttöku enda hafa farið fram miklar framkvæmdir þar. Búið að byggja og opna inní nýju stofuna en þá þarf að þrífa og svo á að freista þess að leggja parket á gólfið. Mikið verk enn framundan hjá Margréti og Fannari í íbúðinni.
Ég hef ekki skrifað lengi á bloggið mitt þó hef ég haft nóg að gera. Stóðhestarnir Gautrekur og Hjálprekur eru verkefni mitt daglega, hef getað hreift þá á hverjum degi svo þeir eru að komast í gott stand. Nýlega fékk ég það verkefni að freista þess að standa í vinnu við að koma á laggirnar veiðideild í veiðifélagi Árnesinga. Nýtt fyrir mig að vinna þá vinnu, enda hef ég ekki áhuga á að veiða lax. En ég hef áhuga á að styðja laxarækt í Tungufljóti.
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Bloggar, Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2008 kl. 22:07 | Facebook
Athugasemdir
Til hamingju með ömmustrákinn - ótrúlega skemmtilegt að vera amma
. Gangi þér vel í þínu hrossa- og laxastússi.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 9.11.2008 kl. 22:41
Jónína Rós! þakka þér kærlega fyrir notalega kveðju. Óska þér líka alls góðs í þínu stússi. Veit að sveitarstjórnamálin taka mikinn tíma þessa dagana, fjárhagsáætlun og allt það. Hitti ráðherra sveitarstjórnarmála í gær á uppskeruhátíð hestamanna. Treystum því að hann standi með okkur sveitarstjórnarmönnum í stuðningi við sveitarfélögin. Ekki auðvelt að taka á málum eins og allt er. Kær kveðja Drífa
Drífa Kristjánsdóttir, 9.11.2008 kl. 23:25
Alltaf jafn gott að komast í sveitina. Það var viðeigandi að mér fannst að halda fyrsta afmælið fyrir austan enda Stormur hagavanur þar eftir að hafa eytt sumrinu í sveitinni.
Takk fyrir alla aðstoðina og aðstöðuna. Elska ykkur.
kv FÓ
Fannar (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 10:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.