Ráð Þorvaldar Gylfasonar....
13.10.2008 | 09:36
Ingibjörg vill að við leitum aðstoðar hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og ég hef verið hlynnt því að leitað væri til fagfólks sem kann til verka.
Þorvaldur Gylfason gaf skýr ráð í Silfri Egils fyrir viku. Hann vildi að Íslendingar leituðu til Svía, og Norðmanna. Þeir ættu sérfræðinga í að taka á erfiðleikum álíka okkar. Hann sagði Svía hafa unnið þrekvirki í fjármálakreppu sem reið yfir þá um 1990. Ég varð mjög hrifin af ráðum Þorvaldar og minni á þau hér nú þegar Ingibjörg Sólrún talar. Ég óska henni góðs bata.
Nú spyr maður sig hvort ekki eigi að gera breytingar í stjórn landsins, og að Samfylkingin leiði breytingar sem framundan eru í uppbyggingu fjármálakerfisins og uppbyggingu landsins.
Ingibjörg Sólrún: Fyrst IMF og svo ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það eina sem samylkinginn hefur komið með sem ráð er:
Að láta aðra gera þetta og taka ekki ábyrgð sjálf. afsala öllu til IMF og ESB. Það er stefna samfylkingunar.
Fannar frá Rifi, 13.10.2008 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.