Huginn frá Haga fer til síns heima

Í dag verðu síðasta sónun á hryssun sem hafa verið með Huginn í Haga hér á Torfastöðum.  Huginn hefur verið með hryssum í allt sumar og nú eru þau öll á förum.  Vonandi verða flestar hryssurnar fylfullar.  Það hefur rignt hér mjög mikið í morgun en heldur er rigningin í rénum. 

Fannar hefur boðað komu sína með Storm um helgina.  Mamma hans verður fyrir í verkefnum fyrir sunnan og nú á að hætta með brjóstagjafir, enda er hann á leið á leikskóla þótt ungur sé.  Verður á flottum stað, rétt hjá heimili sínu.  Mjög þægilegt og hann verður örugglega glaður að vera með öðrum börnum. 

Eldur, Guðrún og Björt hafa líka boðað komu sína á laugardaginn, ætla að koma á kveðjutónleikana, kveðja kórstjórann sinn kæra, Hilmar Örn Agnarsson.  Ég hlakka mjög til bæði að fá þau og að vera í Skálholti á laugardagskvöldið.  Tónleikarnir hefjast kl. 17:30. 

Hef verið að koma efni inná heimasíðuna mína kynna hesta svo nú þarf ég að fara að þjálfa þá og koma mér sjálfri í líkamlegt form. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband