Skálholt, kveðjutónleikarnir á laugardaginn

Í gærkvöld var æfing með öllum kóruum sem ætla að halda kveðjutónleika fyrir kórstjórann sinn, Hilmar Örn, í Skálholti.  Það hefur verið skemmtilegt að æfa undir kveðjutónleikana sem verða á laugardaginn, eftir tvo daga.  Allur undirbúningur gengur vel, búið að fá lánaða auka stóla, pallarnir verða tilbúnir, sætavísur komnar, stóla-og pallaberar tilbúnir og áhyggjur af umönnun á yngstu kórfélögum eru í vinnslu.  Kórfélagar geta keypt hressingu í Skálholtsskóla og við verðum að muna eftir hressingu handa börnunum.  Allt verður tilbúið í tæka tíð eins og alltaf, þegar allir taka höndum saman. 

Greinar hafa birst í héraðsblöðunum og búið er að senda auglýsingu á öll heimili í Uppsveitum Árnessýslu, enda á Hilmar Örn marga vini og vildarmenn og sjálfsagt að fólk fái tækifæri til að koma á tónleikana og þakka honum fyrir framlag hans til samfélagsins undanfarin 17 ár. 

En það er í fleiri horn að líta.  Við Ólafur fórum niður í vík í dag en í gær urðum við frá að hverfa enda vatnsstaðan vegna rigninganna undanfarið svo há í víkinni að við gátum ekki athafnað okkur komumst ekki yfir skurði og vatnslænur vegna mikils vatnsflaums.  Í dag vorum við betur búin, á dráttarvél og gátum útbúið nokkurskonar brú yfir vatnsmikinn skurð.  Náðum að tengja rafmagn í girðingar svo nú þurfum við ekki að hafa áhyggjur af rafmagnslausum girðingum, og hrossum sem ekki virða girðingarnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband