Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
Hvítárbrúin opnuð fyrir umferð miðvikudaginn 1. desember 2010
29.11.2010 | 17:20
Margir hafa sýnt áhuga á að hittast í tilefni dagsins og nú er lagt til að íbúar í Hrunamannahreppi og Bláskógabyggð hittist á brúnni miðvikudaginn 1. des. milli kl. 15:00 og 17:00, kíki á mannvirkið, spjalli saman, takist í hendur, faðmist eða hvaðeina sem þeim dettur í hug að gera. Fyrirvarinn er lítill því ekki var vitað um opnunardaginn, en ef menn vilja leggja eitthvað til er það velkomið.
Tungnakonur búsettar í Hreppnum og JÁVERK bjóða upp á kaffi og kleinur í vinnubúðunum vestanmegin árinnar. Ekki er um formlega opnun eða vígslu brúarinnar að ræða, það gerist 2011, þegar öllum vegaframkvæmdum verður lokið. Þetta er einungis jákvætt stefnumót íbúa beggja vegna brúarinnar.
Ísey Eldsdóttir skírð í dag.
2.11.2010 | 23:39
Í dag var dóttir Elds og Guðrúnar skírð. Athöfnin var heima hjá foreldrum Guðrúnar þeim Kristjáni og Ingibjörgu og var yndisleg. Gaman að fá nafn á yndislegt barn, þurfa ekki lengur að kalla hana lillu eða álíka. Litla fjölskyldan kom heim vegna þess að amma Drífa átti afmæli og það var ekki hægt að halda uppá það án þeirra. Það var bara náð í þau. Ég amman naut þess mjög að vera með allri fjölskyldunni um síðustu helgi og yndislegum vinum. Já og ömmustelpan heitir Ísey, Ísey Eldsdóttir og amma hennar Ingibjörg hélt henni undir skírn. Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)













martasmarta
tofraljos
zunzilla
hildurhelgas
vefritid
svanurg
steinig
valdimarjohannesson