Gautrekur IS2003188503 frá Torfastöðum í kynbótadómi
11.6.2009 | 16:56
Ég var ánægð með hann Gautrek okkar í dag. Mér finnst hann hafa mjög flotta líkamsbyggingu en dómarar gáfu honum samt ekki hærra en 8,06 fyrir byggingu.
Það þýðir víst ekki að deila við dómarann en okkur finnst einkunnin 8,0 fyrir háls og herðar ansi nánasarleg og illa rökstudd.
Móðir hans Randalín var með 9,0 fyrir háls og herðar og okkur finnst hann eiga a.m.k. einkunnina 8,5. En dómararnir ráða.
Afkvæmi G autreks eru afar hálsfalleg. Gautrekur fer í yfirlitssýningu á sunnudaginn eftir hádegi. Þá kemur í ljós endanleg niðurstaða.
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkur: Lífstíll | Breytt 13.6.2009 kl. 19:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.