Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Sætur sigur á Keflvíkingum
4.10.2008 | 09:03
Keflvíkingar hafa oft verið erfiðir. Nú sýna KR-ingar að þeir eru bestir. Áfram KR, vinna Grindvíkingana á morgun...
![]() |
KR-ingar sterkari og komnir í úrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Engar bölbænir, leitum tækifæranna og njótum þess sem við eigum. Hilmar Örn organisti kvaddur í Skálholti
4.10.2008 | 08:25
Ég hef alveg haldið mér saman undanfarið. Vil ekki leggja orð í belg, tala um hrakfarir, hrun, kreppu og annað sem klifað er á, allstaðar, alla daga. Hef notað undanfarna daga í að njóta síðustu helgar, ylja mér við skemmtilegar minningar um síðustu tónleikana okkar í Skálholti þann 27. sept s.l.
Kveðjutónleikarnir sem við héldum Hilmari Erni voru yndislegir. Allir fluttu verk sín af mikilli gleði, kórarnir hans Hilmars og vinir kvöddu Hilmar Örn með mjög fallegum söng og miklum tónlistarflutningi og það var mikil vellíðan í Skálholti. Í lok tónleikanna hafði Hilmar ákveðið að við myndum syngja fallega írska bæn sem flytja á í messulok. Bænin er þýdd af Bjarna Stefáni Konráðssyni og er svona:
Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhverrn dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér.Á þessum orðum og söng enduðu tónleikarnir, úti á tröppum Skálholtskirkju, bænin sungin fyrir gesti á meðan þeir komu út úr kirkjunni. Þessi uppákoma var óvænt, enginn hafði skipulagt hana, þetta gerðist bara að allir fóru út syngjandi og hljómsveitin fylgdi í kjölfarið. Staðarhaldarar voru heima og hafa vonandi notið bænarinnar þótt þeir sæju sér ekki fært að koma á tónleikanan. Söngurinn ómaði á hlaði Skálholts í a.m.k. 20 mínútur og bæn okkar barst um víðan völl. Við trúum því að við verðum bænheyrð.
Skil ekkert í öllu volæðinu sem er blásið upp í fjölmiðlum. Mín reynsla er að verkefnin eru til að fást við þau og leysa. Áföll fela alltaf í sér ný tækifræri, það verður bara að leita þeirra og vinna í því að ná tækifærunum og láta þau verða til góðs. Undanfarna viku hef ég notað í tiltekt heima hjá mér pussað silfrið og laðað fram glansinn. Það lítur allt betur út en áður. Fannar sagði fyrir tveimur dögum: "Mamma ef ég missi vinnuna þá flytjum við bara austur búum hjá ykkur og hjálpumst að. " Það væri nú mjög gaman, best að ég biðji ekki neinna bölbæna svo hann missi ekki vinnuna, þótt mér þætti það bara gaman að fá þau til mín.
Huginn frá Haga fer til síns heima
26.9.2008 | 09:14
Í dag verðu síðasta sónun á hryssun sem hafa verið með Huginn í Haga hér á Torfastöðum. Huginn hefur verið með hryssum í allt sumar og nú eru þau öll á förum. Vonandi verða flestar hryssurnar fylfullar. Það hefur rignt hér mjög mikið í morgun en heldur er rigningin í rénum.
Fannar hefur boðað komu sína með Storm um helgina. Mamma hans verður fyrir í verkefnum fyrir sunnan og nú á að hætta með brjóstagjafir, enda er hann á leið á leikskóla þótt ungur sé. Verður á flottum stað, rétt hjá heimili sínu. Mjög þægilegt og hann verður örugglega glaður að vera með öðrum börnum.
Eldur, Guðrún og Björt hafa líka boðað komu sína á laugardaginn, ætla að koma á kveðjutónleikana, kveðja kórstjórann sinn kæra, Hilmar Örn Agnarsson. Ég hlakka mjög til bæði að fá þau og að vera í Skálholti á laugardagskvöldið. Tónleikarnir hefjast kl. 17:30.
Hef verið að koma efni inná heimasíðuna mína kynna hesta svo nú þarf ég að fara að þjálfa þá og koma mér sjálfri í líkamlegt form.
http://www.torfastadir.is heimasíðan að komast í virkni
23.9.2008 | 13:38
Nú eru liðin fimm ár síðan ég reyndi að koma mér upp heimasíðu. Mér tókst ekki að virkja hana enda var ég með svo lélega tengingu eitthvað sem kallað var ISDN og mér tókst ekki að koma neinu inná síðuna. Gafst upp og lét allt danka.
E n nú hef ég verið að gera nýja tilraun þarf að koma hestunum okkar á framfæri enda þurfum við að selja fleiri hross svo eitthvert vit sé í búrekstrinum hér. Vefsíðuhönnuðurinn tjáir mér að ekkert sé hægt að betrumbæta eða breyta síðunni sem sett var upp fyrir fimm árum, ef ég vilji breytingar þá verði að setja upp nýja síðu. Ég er svo hrifin af því að hafa haldið lénunum http://www.torfastadir.is og http://www.torfastadir.com að nú ætla ég að gera lokatilraun og sjá hvort ég kemst í tengsl við fólk sem vill kaupa af okkur. Spennandi tímar og gott að vinna þetta í haustrigningunum.
Hilmar Örn Agnarsson, kórstjóri, kveðjutónleikar
19.9.2008 | 10:19
Félagar úr Skálholtskór og ásamt fleiri kórum Hilmars Arnar, hafa ákveðið að kveðja með viðhöfn kórstjórann sinn en hann er að fara frá Skálholti . Leyfi mér að setja hér fréttatilkynningu frá kórfélögum.
Kveðjutónleikar í Skálholtskirkju,
Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri kvaddur.
Laugardaginn 27. september kl 17.30 verður haldin mikil tónlistarveisla í Skálholtskirkju. Hilmar Örn hefur nú látið af störfum sem organisti og kórstjóri í Skálholti, eftir 17 ára farsælt starf og nú er komið að eftirminnilegri kveðjustund.
Af þessu tilefni koma fram Barna-og Kammerkór Bisk., Skálholtskór, Kammerkór Suðurlands og fjöldi þekkts tónlistarfólks undir stjórn Hilmars Arnar, sem tekið hefur þátt í tónleikum með kórum Hilmars undanfarin 17 ár.
Fyrsta skal nefna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, sem sungið hefur einsöng árlega með kórunum innanlands sem utan. Einnig söngvarana Hrólf Sæmundsson, Margréti Stefánsdóttur og Maríönnu Másdóttur, sálmabandið Lux Terrae, Hjörleif Valsson konsertmeistara og Jóhann I. Stefánsson trompetleikara. Einnig munu hinir ágætu organistar Haukur Guðlaugsson, Steingrímur Þórhallsson og Guðjón Halldór Óskarsson leika á orgel kirkjunnar fyrir tónleikanna, meðan gestir ganga til sætis.
Flytjendur allir munu leggja sitt af mörkum til að gleðja þá sem koma að hlusta, til að gleðja hvert annað og ekki síst söngstjórann, sinn góðan vin og baráttumann fyrir sönguppeldi og söngmenningu í sveitum landsins. Megi honum farnast vel á nýjum starfsvettvangi.
Aðstandendur tónleikanna óska eftir að þeir sem tök hafa á, láti upphæð sem svarar aðgangseyri að tónleikunum, ( t.d . kr 2000,- ) í söfnunarkassa í andyri og mun ágóði tónleikanna renna óskiptur í námssjóð fyrir Hilmar Örn. Það yrði örlítill þakklætisvottur fyrir það sem hann hefur lagt af mörkum fyrir samfélagið hér austan fjalls undanfarna áratugi. Hlökkum til að sjá sem flesta!
Félagar í kórum Hilmars
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Konur gefi enn og aftur framlag sitt.
16.9.2008 | 10:25
Alltaf er ætlast til þess að framlag kvenna eigi ekki að kosta neitt, þær mega ekki hagnast á framlagi sínu til annarra fjölskyldna. Þetta eru úrelt sjónarmið og lítt sæmandi. Konur eiga að fá mikið fyrir að lána líkama til að ganga með börn fyrir aðra. Tilvitnun í frétt:
"Meðal þeirra gagnrýnisradda sem heyrst hafa í umræðunni um lögleiðingu staðgöngumæðra eru að verði greitt fyrir meðgöngu staðgöngumóðurinnar bjóði það óneitanlega upp á að efnaminni konur gerist staðgöngumæður á viðskiptalegum grunni.
Þetta má ekki verða atvinnuvegur, segir Matthías og telur heppilegra að staðgöngumóðir sé einhver sem sé nákomin hinum verðandi foreldrum. Hins vegar er eðlilegt að staðgöngumóður sé greitt fyrir vinnutapið og þann kostnað sem hlýst af því að vera staðgöngumóðir, því það er auðvitað mikil fyrirhöfn og viss áhætta að ganga með barn, segir Matthías og bendir á að einnig þyrfti að skilgreina í lögum hver eigi rétt á fæðingarorlofi sé barn getið með aðstoð staðgöngumóður."
Greiðum því konum há laun fyrir að ganga með börn annarra og og ef einhverjar efnaminni konur geta hagnast á því þá er það bara allt í lagi.
![]() |
Staðgöngumæðrun „má ekki verða atvinnuvegur“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tungnaréttir
14.9.2008 | 16:17
Í gærmorgun voru Tungnaréttir. Þá komu Margrét og foreldrar hennar með Storm á Torfastaði, til okkar Óla og við fórum öll í réttirnar. Fyrstu réttirnar hans Storms, sem nú er orðinn tíu-og hálfs mánaða gamall.
Fjárréttir eru haldnar í annað sinn eftir riðuniðurskurðinn og fénu fjölgar hér í Tungunum. Sérkennilegt var að sjá að engin kind var í sumum dilkum sem áður var í fjöldi fjár. Féð inn með Hlíðum fer nú á Kjöl. Austurhlíðaféð er margt og það var myndarlegur hópur sem var rekinn heim úr réttunum. Skemmtileg breyting frá því sem áður var, þegar fé úr Tungunum þurfti að vera í tveimur aðskildum afréttarfólfum. Nú er það óþarfi enda allt féð sem fer á fjallið, nýtt í sveitinni keypt frá riðulausum hólfum.
Ég dáðist að öllum sem komu ríðandi í réttirnar, það rigndi heil ósköp það hafði engin áhrif á reiðmennina, þeir héldu sínu striki og venjum, koma ríðandi í réttirnar.
Skálholtskórinn hélt ekki réttarballið þetta árið, enda er Hilmar Örn að fara frá Skálholti og Skálholtskórinn, hefur því formlega lagt sig niður. Fjáröflun var því ekki nauðsynleg.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11. september 2008
11.9.2008 | 09:13
Í dag á hann pabbi, Kristján Sigurðsson afmæli, er orðinn 82ja ára. Til hamingju pabbi minn. Hann er ern og frískur þótt aldurinn sé farinn að segja til sín og vinnur hörðum höndum að ýmsum verkefnum. Mér finnst mest spennandi að hann er hefur verið að skrifa um meðferðarstarf sem unnið hefur verið með ungmenni á Íslandi en hann var mikill frumkvöðull í meðferðarmálum unglinga.
Pabba hefur fundist margt vitlaust í umræðunni um Breiðavík en ekki tjáð sig mikið um það. Hans upphaf í meðferðarmálum var að hann var fenginn til að stýra Breiðavík og hóf störf þar 1955 en fór þaðan ári síðar. Vildi ekki ala börnin sín (mig og Fjalar) upp á einangruðum og afskekktum stað, reyndar tók mamma alveg fyrir að vera áfram fyrir vestan. Síðar tók hann að sér unglingamál hjá lögreglunni og hjá félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Árið 1972 var hann gerður forstöðumaður Unglingaheimilis ríkisins og þar lagði hann grunn að miklu og góðu starfi í meðferðarmálum ungmenna. Hann pabbi hefur frá mörgu að segja og nú hefur hann það verkefni að koma því á prent. Vonandi gengur það vel.
11. september afmæli pabba og sjö ár síðan að árás á Tvíburaturnana í New York var gerð. Ég man vel hvar ég var 11. september 2001. Ég fékk fréttirnar í leitum á Kili. Hafði þá verið í 5 daga á fjöllum án frétta en fjallmenn fengu fréttirnar af árásinni þegar við komum í Árbúðir. Guðný og Camilla stóðu á öndinni, sögðu fréttirnar um leið og komið var í kofa. Mér varð strax hugsað til Fannars og Margrétar sem voru í USA í námi, langaði að ná í þau en vildi ekki hringja þótt ég væri með NTM símann minn því ég vissi að erfitt væri að ná út og að allir hlytu að vera að hringja út til ættingja sinna. Hringdi bara til Elds og Bjartar að athuga hvort þau vissu eitthvað meir en ég. Já ég man þennan dag eins og gerst hefði í gær, eins og ég býst við að allir geri, muni vel hvar þeir voru þegar þeir heyrðu af árásunum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Körfuboltalandslið Íslendinga, spennandi upphaf
11.9.2008 | 08:41
![]() |
Íslendingar skelltu Dönum í Höllinni 77:71 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Breiðavíkurbörn nútímans.
10.9.2008 | 00:01
Er mjög hugsi yfir stöðu barna og ungmenna í dag. Sé ekki að Barnaverndarstofa hafi, undanfarin ár, verið að veita þá meðferðarþjónustu sem þörf er á. Börnum er fórnað ef þau eru í vanda og fjölskyldur fá ekki aðstoð þrátt fyrir að barnaverndarlög eigi að verja börnin til 18 ára aldurs.
Nú fá Breiðuvíkurdrengir mikla samúð. Það er vel, en hvernig mun sagan dæma Barnaverndarstofu? Félagsmálayfirvöld sveitarfélaga þegja þunnu hljóði. Skil ekki hversvegna sveitarfélögin gera ekki kröfu um meiri og betri þjónustu. Samningur ríkis og sveitarfélaga kveður á um að Barnaverndarstofa eigi að veita meðferðarþjónustu fyrir börn og ungmenni. BVS hefur gert sveitarfélögunum mjög erfitt fyrir þegar þau hafa óskað eftir þjónustu fyrir ungmenni og nú notar Barnaverndarstofa umfjöllun um Breiðavík sér til afsökunar og segir að sú umfjöllun hafi minnkað eftirspurn eftir meðferðarvistun fyrir ungmenni.
Ég fullyrði að þetta er bull, Barnaverndarstofa hefur leynt og ljóst lagt stein í götu meðferðarstaða fyrir ungmenni. Skjöldólfsstaðir, Meðferðarheimilið Torfastöðum og Hvítárbakki hafa hætt þjónustu undanfarin ár. Með því voru lögð niður 18 meðferðarpláss hjá Barnaverndarstofu og ekkert komið í staðinn. Á sama tíma hefur Barnaverndarstofa gert sveitarfélögunum mjög erfitt fyrir þegar þau vantar þjónustu fyrir ungmenni í vanda. Það hefur Barnaverndarstofa gert með auknum kröfum á velferðarþjónustu sveitarfélaga þannig að umsóknarferlið eftir þjónustu var gert stöðugt erfiðara og er orðið svo erfitt að flest sveitarfélög eru hætt að óska eftir meðferðarvistunum hjá Barnaverndarstofu.
Nokkrum árgöngum barna, sem hafa átt í erfiðleikum hefur ekki verið sinnt. Er ekki verið að endurtaka söguna um ljóta meðferð á börnum þegar þeim er ekki sinnt? Verða Breiðavíkurbörn framtíðarinnar e.t.v. börnin sem fengu ekki þjónustu Barnaverndarstofu?
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)