Hvaða vegur við Laugarvatn?

Það eru þrjár leiðir að Laugarvatni og ég velti fyrir á hvaða leið umrætt slys var.  Gjábakkavegur hefur oftast haft hæstu slysatíðni vega skv. upplýsingum frá Vegagerðinni. Mörg og alvarleg slys hafa verið á leiðinni að Laugarvatni frá Grímsnesi (Svínavatni) á síðustu tveimur árum.  Ég veit ekki hvernig staðan er á leiðinni að Laugarvatni um Laugardalinn.  Mjög mikil umferð á þessum leiðum og nauðsynlegt að vegirnir séu með háa öryggisstaðla.  Sú er ekki raunin við Laugarvatn og mikilvægt að það breytist.  Vegirnir hafa oft mjög litlar vegaxlir í þeim eru lægðir og hæðir og mjög fáir beinir vegakaflar.
mbl.is Útafakstur við Laugarvatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta var á veginum frá svínavatni og að laugarvatni, en þetta slys var ekki vegna vegum,  bara þreita í ökumanninum. strákurinn sem slasaðist er nánast heill og hufi. algjört kraftaverk. þurfti smá aðgerð á ökla vegna broti , og smá óþægindi í baki  ,

KRAFTAVERK

kv systir hans

bergros (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 14:48

2 Smámynd: Drífa Kristjánsdóttir

Gott að heyra að ökumaður fór ekki illa.  Þakka þér athugasemdina og fyrirgefðu að ég hef ekki svarað þér fyrr.  Hef ekkert farið inná bloggið mitt í nokkra daga, kv Drífa

Drífa Kristjánsdóttir, 3.9.2008 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband