Er að læra

Ég var að prófa mig á blogginu, gengur hægt er svo ein, verð að læra allt án hjálpar en það kemur.  Mér liggur ekkert á nú þegar ég er með brotið herðablað, 5 rifbein putta og viðbein.  Báðar hendur hamlaðar. Get vel eytt tímanum í að læra á tæknina.  Setti inn mynd af Stormi en held að hún sé alltof stór fyrir kerfið.  Það gerir ekkert til, hann er flottasta barnabarnið mitt enda hið eina ennþá. 

Ætlaði að vera í bænum í dag að hlusta á fyrirlestra um eflingu foreldrafærni en fann í gær að það yrði ekki sniðugt fyrir mig að mæta á ráðstefnuna.  Get ekki ekið sjálf og þyrfti því mann með mér og svo er ég öll hreyfihömluð. Er bara of mikið brotin ennþá og of stutt síðan ég slasaðist.  Læri bara í staðinn á bloggið.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband