Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2014

Dásamleg læknisþjónusta.

Nú get ég ekki orða bundist.  Ég hef alltaf verið full aðdáunar á læknunum og hjúkrunarfólki á Íslandi.  Þessa dagana fæ ég að fylgjast með störfum þeirra í návígi og ekki minnkar aðdáun mín.  

Fyrir stuttu greindist eiginmaður minn með mjög erfiðan lífshættulegan sjúkdóm.  Hann var strax lagður inná Landspítala háskólasjúkrahús og meðferð hafin án tafar. 

Augljóst var að læknar vissu hvað þeir yrðu að gera og þeir brugðust hiklaust við og hófu sína vinnu við að berjast við óvininn.  Færni þeirra er greinilega mjög mikil, eftirfylgnin alger og eiginmaður minn nýtur stöðugra rannsókna mörgum sinnum á dag.   Meðferð lækna   virðist stýrast af líkamlegum styrk hans eða veikleika.  Hann er styrktur líkamlega, gefnar blóðflögur og séð um sýkingavarnir.  Allt eins og niðurstaða rannsókna gefur tilefni til að bregðast við hverju sinni.  Ég skynja vel að meðferðarteymið veit nákvæmlega hvað þau eru að gera og þau hika aldrei í sinni vinnu.  Ég er svo þakklát fyrir hæfni þessa fólks og eftirfylgninni þeirra við að freista þess að vinna bug á  sjúkdómnum.

Því finnst mér svo sorglegt að hlusta enn einu sinni og aftur og aftur á umfjöllun stjórnmálamanna sem hugsa fyrst og fremst um sparnað og niðurskurð.

Við heyrum enn og aftur um yfirkeyrslu í fjárhag heilbrigðiskerfisins.  Formaður fjárhagsnefndar alþingis hefur hafið upp raust sína og skammar stofnanir fyrir að fara yfir fjárheimildir sína og sumir nefndarmenn hafa fylgt í kjölfarið. 

Ég þakka fyrir þá þjónustu sem við erum að fá núna og að yfirstjórn spítalans skuli ekki hafna meðferð vegna þess að það megi ekki kosta of mikið að koma fólki til bjargar.   

Ég er ekki hissa þegar ég heyri í fréttum að meðalaldur læknastéttarinnar sé að hækka.  Ungir læknar hafa miklu meiri tækifæri erlendis miklu betri laun og auðvitað veigra þeir sér við því að koma heim að námi loknu.  Hér er umræðan neikvæð og eilíft þvarg um að kostnaðurinn sé of mikill.  Fjárframlögin alltof lág allt skorið við nögl.  Alþingi skammtar naumt og svo er fólk skammað fyrir yfirkeyrslu. 

Ég varð bara að koma þessu á framfæri og bið nú þá sem eiga að stjórna málum hér að fara að gera það á uppbyggilegan hátt og með virðingu fyrir því góða starfi sem unnið er um allt í samfélagi okkar.  Hættið niðurrifstali og neikvæðni.  Stöndum með og styðjum við vel unnin og óeigingjörn störf lækna, hjúkrunarfólks og alls starfsfólks Landsspítalans háskólasjúkrahúss og allra annarra í samfélagi voru.  Við eigum þessu fólki mikið að þakka.  Þau eiga að fá hrós og klapp á bakið en ekki neikvæða og hundleiðinlega umfjöllun.  Hjartans þakkir.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband