Hárið 40 árum seinna

Fjöritíu ár eru síðan við hættum sýningunum.  Fyrsta uppfærslan á Hárinu var árið 1971 og við fögnuðum því 40 árum síðar.

Drífa, Jana og Helga í kjólnum góða Drífa, Jana og Helga syngja White boys (1) Vinkonur 40 árum seinna, Drífa Helga og Jana Þórdís, Drífa, Jana Helga og Árni Blandon


Hárið fyrsta uppfærsla árið 1971

4. Hárið 4. síða Drífa (Chrissy)

Ég var að fá myndir af prógramminu okkar úr Hárinu sem sett var upp í Glaumbæ 1971 og gekk fyrir fullu húsi allan tímann sem sýningar stóðu yfir. Varð að setja þessar myndir í myndamöppu hér á síðunni.

9871893


Hvítárbrúin vígð 9. sept. 2011

Hvítárbrúin hefur nú þegar breytt miklu fyrir okkur Uppsveitamenn og á eftir að breyta enn meir í framtíðinni.  Þetta er mjög gleðilegur atburður og við þökkum kærlega fyrir okkur.  Hvítárbrúin styttir vegalengdir í allar áttir og tengir okkur meiri og betri böndum en áður. 


mbl.is Hvítárbrú formlega opnuð á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mamma Rósa og amma Guðlaug myndir

mamma Rósa 22ja ára.  Mamma mín Rósa Björnsdóttir, 22ja ára að sögn Bellu frænku en hún færði mér þessa mynd og líka þá sem er af mér og ömmu minni.  Ég held að þessi mynd hafi verið sumarið 1952. Móðuramma mín, ég Drífa og   Mynd frá Bellu frænku.

Tungufljótsdeild V.Á. Dómsmál

Ég hef verið formaður Tungufljótsdeildar frá því að mér og félögum mínum og landeigendum að Tungufljóti tókst að stofna veiðideild í Tungufljóti.   Það var sumarið 2009. Stofnun deildarinnar var kærð til Fiskistofu. Fiskistofa gaf sér 6 mánuði eins og lög gera ráð fyrir til að úrskurða um stofnun deildarinnar.  Deildin var löglega stofnuð samkvæmt úrskurði Fiskistofu frá 19. janúar 2010.  

Nú hefur verið dæmt í máli deildarinnar gegn landeiganda sem á, að eigin sögn, 20% í jörð við Tungufljótið. Hann má ekki veiða í sínu landi þar sem Tungufljótsdeild hefur leigt Tungufljótið út til þriðja aðila.  Óyggjandi dómur Héraðsdóms Suðurlands segir allt um málið.  Hægt að lesa dóminn hér.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Sleppingar laxa

Óska laxveiðimönnum til hamingju með aflann í upphafi sumars. Ég veiði ekki lax, en ég lærði það í vetur að ef fólk ætlar að sleppa veiddum laxi þá verða menn að hafa í huga að brenna laxinn ekki. Mér er sagt að ef lax er tekinn upp með berum höndum manna þá brenni hann sig, hann hefur kalt blóð en maðurinn 37 stiga heitt blóð. Því á ekki að taka á laxinum með berum höndum, ullarvettlingar munu vera mikilvægir á höndum veiðimanna við sleppingarnar, þá brennir laxinn sig síður. Vildi bara miðla þessu til þeirra sem sleppa veiddum laxi aftur í árnar.
mbl.is Fyrsti laxinn kominn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláskógabyggð sem hluti af Uppsveitunum, Flóinn, Ölfus og Hveragerði sameinast um velferðarþjónustu.

Við erum mjög glöð yfir samkomulaginu sem undirritað var í gær.  Spennandi verkefni jákvætt að vinna saman að góðum málum.  Vonandi verður velferðarþjónustan enn betri og skilvirkari en áður eftir breytingarnar. 
mbl.is Sveitarfélög sameinast um velferðarþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottir KR-ingar, tvöfaldir meistarar 2011, til hamingju.

Dáist að leikmönnum.  Orðnir Íslandsmeistarar.  Óska Fannari og félögum hans til hamingju með sigurinn.  Mamma mjög hreykin eins og vera ber.


mbl.is KR-ingar Íslandsmeistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagnaðarlæti KR-inga, sigurvegara Bikarkeppninnar (poweraid)

Loksins smá blogg. Hef ekki skrifað neitt í þrjá mánuði.  Ég er svo glöð fyrir hönd sonarins, hann náði markmiðum sínum sem fyrirliði liðsins sem landaði titlinum Bikarmeistar 2011.  Myndasyrpan frá sigrinum flott.
mbl.is Myndasyrpa frá bikarsigri KR-inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítárbrúin opnuð fyrir umferð miðvikudaginn 1. desember 2010

Margir hafa sýnt áhuga á að hittast í tilefni dagsins og nú er lagt til  að íbúar í Hrunamannahreppi og Bláskógabyggð  hittist á brúnni miðvikudaginn 1. des. milli kl. 15:00 og 17:00,  kíki á mannvirkið, spjalli saman, takist í hendur, faðmist eða hvaðeina sem þeim dettur í hug að gera.  Fyrirvarinn er lítill því ekki var vitað um opnunardaginn, en ef menn vilja leggja eitthvað til er það velkomið.
Tungnakonur búsettar í Hreppnum“ og JÁVERK bjóða upp á kaffi og kleinur í vinnubúðunum vestanmegin árinnar. 
Ekki er um formlega opnun eða vígslu brúarinnar að ræða, það gerist  2011, þegar öllum vegaframkvæmdum verður lokið. Þetta er einungis jákvætt stefnumót íbúa beggja vegna brúarinnar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband